Réttur lífeyrisdeildar í Orlofssjóð
Félagsfólk heldur punktaeign sinni þegar þeir gengur í í lífeyrisdeild og geta klárað að nýta punktana sína en ekki er um frekari punktaávinnslu að ræða. Vetrarleiga kostar ekki punkta en sumarleiga kostar punkta.
Félagar hafa rétt á að sækja rafrænt um orlofshús í sumar nema á 7 vikna tímabili sem er frá 21. júní - 4. ágúst 2024 og páskleigu. Þær vikur sem ekki leigjast út fara svo í almenna úthlutun sem félagar í lífeyrisdeildinni hafa rétt á að bóka til jafns við aðra. Félagsmenn í lífeyrisdeildinni greiða sömu leigu og aðrir félagar.
Félagsfólk í Lífeyrisdeild getur leigt sér orlofshús yfir vetrartímann virka daga í Vaðnesi og Munaðarnesi á 2.650 kr. nóttina frá mánudegi til föstudags. Til þess að fá þennan afslátt þarf að hafa samband við skrifstofu félagsins s. 525 8330.
Ef í ljós kemur að félagar í Lífeyrisdeild framleigja orlofshús til þriðja aðila munu þeir fá áminningu eins og annað félagsfólk Sameykis. Það getur leitt til þess að þeir fái ekki að leigja orlofshús. Ætlast er til að félagsfólk sé sjálft með í för.
Félagar í lífeyrisdeild hafa rétt til þess að nýta sér aðra þá orlofsmöguleika sem Sameyki býður upp á. Þar má nefna gjafabréf í flug, ferðaávísanir, veiði- og útilegukort o.fl. sem auglýst er á vefsíðu Sameykis hverju sinni.