Aðalfundur Sameykis verður haldinn 27. mars 2025 og hefst klukkan 13:00 á Grand hóteli í Háteig, Sigtúni 28. Aðalfundur Sameykis stéttarfélags í almannaþjónustu er æðsta vald félagsins og skal haldinn fyrir lok marsmánaðar ár hvert. Fyrir þá sem ekki eiga heimangegnt er hægt að taka þátt í gegnum fjarfund í Teams.
Nauðsynlegt er að skrá sig á fundinn.
Óskað er eftir að félagsfólk skrái sig fyrir kl. 16 miðvikudaginn 26. mars. Skráning lokar 27. mars kl. 12.
Fundargögn eru aðgengileg á Mínum síðum frá 17. mars.