Sameyki stendur fyrir fjölskyldu- og gróðursetningarferð í „Landnemareit“ Sameykis í Heiðmörk laugardaginn 6. júní milli kl. 12 og 15, þar sem félagsfólki býðst að taka þátt í frekari gróðursetningu í reitnum. Boðið verður upp á veitingar fyrir alla fjölskylduna í fallegu umhverfi. Gott er að leggja bíl á svokölluðu Borgarstjóraplani en þaðan er rúmlega 600 metra löng ganga í lundinn. Leiðin verður vel merkt með blöðrum. Skráningar er óskað á viðburðinn svo hægt sé að áætla fjölda.
- júní 2026
12:00 - 15:00