Vegghengi
Skráning hefst 23. sep. kl. 10
Á námskeiðinu læra þátttakendur að gera vegghengi með macramé hnúta aðferðinni. Einstök leið til að vinna með höndunum og láta sköpunarflæðið njóta sín.
Í macramé er auðvelt að breyta og bæta verkið með því að halda bara áfram og láta byrjendaörðuleika ekki stoppa sig, þannig lærum við og verðum betri í því sem við erum að fást við. Sköpun í handavinnu eykur vellíðan, að sjá verk verða til í þínum eigin höndum er valdeflandi og ánægjulegt fyrir fólk á öllum aldri.
Námskeiðið hentar öllum, bæði byrjendum og lengra komnum. Engin handavinnukunnátta þarf að vera fyrir hendi. Allt efni verður á staðnum. Allir fara heim með sitt eigið vegghengi.
Leiðbeinandi: Hera Sigurðardóttir er eigandi hannyrðastúdíósins Flóðs & fjöru.