Vinnustaðurinn þinn

Möguleikar vinnustaða

Virk starfsþróun styrkir vinnustaðinn sem heild. Hún hjálpar vinnustöðum að byggja upp hæfni, þekkingu og öryggi starfsfólks þannig að auðveldara verði að takast á við breyttar kröfur, ný verkefni og síbreytilegt starfsumhverfi. Þegar starfsþróun er hluti af menningu vinnustaðarins eykst fagmennska, frumkvæði og geta til að finna nýjar lausnir. Hún getur einnig stuðlað að meiri starfsánægju, minni starfsmannaveltu og sterkari liðsheild. Stjórnendur gegna mikilvægu hlutverki við að skapa aðstæður fyrir nám og þróun.

Starfsþróun getur falist í námi, fræðslu, nýjum verkefnum, breyttum vinnubrögðum eða því að fá tækifæri til að nýta styrkleika sína betur. Starfsþróun eykur starfsöryggi, sjálfstraust og starfsgleði og hjálpar starfsfólki að takast á við áskoranir í starfi. Hún snýst ekki endilega um að skipta um starf heldur um að vaxa með starfinu, þróast áfram og hafa áhrif á eigin leið.

Í grunninn er starfsþróun samstarfsverkefni starfsfólks og stjórnenda. Hún nýtist best þegar samtal á sér stað um þarfir vinnustaðarins, áhuga og styrkleika starfsfólks og þau tækifæri sem eru til staðar. Þannig verður starfsþróun bæði leið til að efla þjónustu og árangur vinnustaðarins og leið fyrir starfsfólk til að vaxa, læra og njóta sín betur í starfi.

Flestir vinnustaðir geta sótt um styrki vegna fræðsluverkefna. Þá geta margir vinnustaðir óskað eftir þjónustu Starfsmenntar sem aðstoðar mannauðsfólk og stjórnendur við að koma fræðslumálum í góðan farveg.

Framhaldsfræðsla

Framhaldsfræðslan vinnur að því að veita fullorðnum einstaklingum með stutta formlega skólagöngu annað tækifæri til náms. Málefnasvið framhaldsfræðslu er sérstakur fjárlagaliður á fjárlögum ríkissjóðs og undir hann heyra m.a. Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, Fræðslusjóður og ýmsir fræðsluaðilar, þ. á m. símenntunarmiðstöðvar, tungumálaskólar og Fjölmennt.
Fræðslu- og símenntunarmiðstöðvarFræðslumiðstöð atvinnulífsins

Starfsmennt

Starfsmennt er fræðslusetur fyrir opinbert starfsfólk og opinberar stofnanir. Þjónustan styður við færniþróun opinbers starfsfólks svo það geti betur tekist á við fjölbreytt verkefni og breytingar í starfsumhverfi sínu. Markviss færniþróun starfsfólks eykur möguleika stofnana til að þróast og ná að samræmast kröfum sem gerðar eru til þeirra á hverjum tíma fyrir sig.
Vefsíða Starfsmenntar

Launað eða ólaunað námsleyfi

Í sumum kjarasamningum er heimilt að veita launað námsleyfi. Til dæmis vegna starfsþróunar eða við ákveðin skilyrði.

Ólaunað námsleyfi getur komið til greina þegar nám eða fræðsla nýtist til lengri tíma og er í samráði við vinnustað.

Mikilvægt er að kynna sér ákvæði kjarasamnings og ræða fyrirkomulag við stjórnendur.

Nánar um námsleyfi