Image for Article

  1. október 2026

Sameyki veitir 750.000 kr. rannsóknarstyrk

Sameyki auglýsir til umsóknar 750.000 kr. rannsóknarstyrk fyrir meistaranema sem vinna lokaverkefni tengt könnuninni Stofnun ársins. Umsækjandi þarf að hafa lokið a.m.k. 30 ECTS-einingum í meistaranámi.

Stofnun ársins er árleg vinnumarkaðskönnun Sameykis sem unnin er í samstarfi við Fjármála- og efnahagsráðuneytið og Reykjavíkurborg.

Við val á styrkþega verður horft til fræðilegs og hagnýts gildis rannsóknarinnar og hvernig hún getur nýst til að bæta starfsumhverfi félagsfólks Sameykis.

Umsóknarfrestur er til og með 30. nóvember 2026.

Tilkynnt verður um styrkþega á málþingi Sameykis um mannauðsmál hins opinbera sem fram fer 11. febrúar 2027.

Með umsókn skal fylgja:

  • Greinargerð um rannsóknarviðfangsefni og rannsóknarspurningar
  • Yfirlit um menntun umsækjanda
  • Upplýsingar um reynslu sem nýtist við rannsóknina

 

Umsóknir sendist á johanna@sameyki.is