Image for Article

  1. júlí 2026

Þrír kjarasamningar uppfærðir – allt gildandi efni á einum stað

Sameyki hefur, í samstarfi við Félagsbústaði, Isavia og Heinemann, áður Fríhöfnina, gefið út uppfærðar heildarútgáfur þriggja kjarasamninga.

Í heildarútgáfunum hafa allar gildandi breytingar og viðbætur verið felldar inn í samningstextann. Þannig er hægt að nálgast gildandi efni hvers samnings á einum stað og fá skýra heildarmynd af réttindum og kjörum samkvæmt samningunum.

Með útgáfunni þarf ekki lengur að fletta á milli eldri útgáfa og breytingaskjala til að finna gildandi ákvæði, allt er aðgengilegt á einum stað.

Samningana má nálgast hér: