Image for Article

  1. nóvember 2026

Vel sóttur félagsfundur þar sem fólk deildi reynslu sinni

Vel var mætt á félagsfund Sameykis í morgun þar sem uppsagnir síðustu vikna voru til umræðu. Fundarmenn deildu eigin reynslu  og góðar umræður sköpuðust um stöðuna, réttindi félagsfólks og þann stuðning sem stendur til boða.

Kári Sigurðsson, formaður, hóf fundinn og ræddi þær miklu hópuppsagnir sem hafa átt sér stað að undanförnu. Guðmundur Freyr Sveinsson, sviðsstjóri kjaramála, og Ívar Örn Ívarsson, lögfræðingur, fóru yfir réttindi félagsfólks við uppsagnir og þá aðstoð sem er í boði við að gæta réttar síns. Jakobína Þórðardóttir fór síðan yfir styrki og annan stuðning sem félagsfólki stendur til boða.

Við hvetjum félagsfólk okkar sem hefur fengið uppsögn til að hafa samband. Við erum til staðar, förum yfir réttindin með fólki og veitum stuðning eftir því sem við á.