Image for Article

  1. febrúar 2026

Verðbólga eykst, kaupmáttur rýrnar

Vísitala neysluverðs, helsti mælikvarði á verðbólgu, hækkaði um 0,94 prósent í febrúar frá fyrri mánuði samkvæmt nýjum tölum Hagstofu Íslands. Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitalan hækkað um 5,2 prósent og mælist ársverðbólga því 5,2 prósent.

Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkaði um 1,09 prósent milli mánaða og um 4,5 prósent á ársgrundvelli.

Meðal þeirra liða sem hækkuðu mest í febrúar voru föt og skór í kjölfar loka vetrarútsala, húsbúnaður og heimilistæki, matvæli og óáfengir drykkir auk hækkana á gjöldum vegna vatnsveitu og fráveitu. Flugfargjöld til útlanda hækkuðu einnig á milli mánaða. Á móti kom lækkun á verði bensíns og dísilolíu, meðal annars vegna leiðréttingar á skráningu eldsneytisverðs í janúar.

Sameyki fylgist náið með þróun verðlags og áhrifum hennar á lífskjör launafólks en áframhaldandi verðbólga hefur bein áhrif á afkomu heimila og kaupmátt launafólks.

Frétt Sameykis: Ársverðbólgan talsvert yfir forsendum liggja að baki kjarasamningum.