Fréttabréf Sameykis október 2026
Næsti kafli
Nú liggur það fyrir að kjarasamningar á almennum vinnumarkaði halda. Ég tel að það hafi verið skynsamleg niðurstaða að þessu sinni að tryggja áframhaldandi vinnufrið og stöðugleika. Þar skipti aðkoma ríkisins með aðgerðapakka sínum miklu máli.
Umræðan undanfarna daga hefur hins vegar sýnt okkur að forsenduákvæði kjarasamninga eru ekki nægilega skýr og að túlkun þeirra getur verið ólík eftir því hver á í hlut. Þetta er mikilvægur lærdómur sem við þurfum að taka með okkur. Fyrir næstu kjarasamninga verðum við að skoða sérstaklega hvernig við tryggjum skýrari ákvæði þannig að ekki fari á milli mála hvað hefur verið samið um.
Nú eru um 16–18 mánuðir þar til flestir kjarasamningar Sameykis renna út. Sá tími mun líða hratt og fram undan er mikil vinna við undirbúning næstu samninga. Þar stöndum við vel að vígi. Kjaradeild Sameykis hefur aldrei verið öflugri og við búum yfir mikilli þekkingu og reynslu sem mun nýtast okkur vel í þeirri vinnu sem fram undan er. Við ætlum að nýta tímann vel, hlusta á okkar félagsfólk og mæta vel undirbúin til næstu kjaraviðræðna.
Á fundi trúnaðarmannaráðs nýverið tilkynnti ég að ég ætla að gefa kost á mér áfram til formanns Sameykis þegar kosið verður á næsta ári. Fram undan eru verkefni sem ég tel mikilvægt að fylgja eftir og mig langar að halda áfram að leggja mitt af mörkum fyrir félagið og ykkur.
Um leið vil ég hvetja ykkur til að taka þátt í komandi kosningum, bjóða ykkur fram til starfa í stjórn Sameykis og stjórnir sjóða félagsins og auðvitað nýta atkvæðisréttinn. Sameyki er félag félagsmanna sinna og framtíð þess ræðst af því fólki sem velur að taka þátt. Ég vona því að sem flestir taki þátt í að móta næsta kafla í sögu Sameykis.
Með kveðju,
Kári Sigurðsson
Formaður Sameykis
Gætir þú verið næsta rödd við borðið?
Á næsta ári verður kosið til stjórnar Sameykis, stjórna sjóða félagsins og kjörstjórnar. Leitað er að félagsfólki sem vill hafa áhrif, taka þátt í starfi félagsins og leggja sitt af mörkum.
Fræðsluhlaðborðið
Nú er tími til að skella sér á námskeið sem hefur lengi verið á „To do“-listanum.
Við hjá Sameyki leggjum áherslu á að félagsfólk okkar hafi aðgang að fjölbreyttum tækifærum til náms og starfsþróunar. Í október er því margt spennandi í boði í samstarfi við Starfsmennt, Framvegis og aðra fræðsluaðila víða um land.
Í boði eru meðal annars námskeið um gervigreind, samskipti og framkomu, starfsmannasamtöl, heilsu og vellíðan, ferðalög og matargerð.
Hvort sem markmiðið er að efla sig í starfi, tileinka sér nýja þekkingu eða einfaldlega hafa gaman af því að læra eitthvað nýtt, þá er líklegt að eitthvað á fræðsluhlaðborðinu höfði til þín.
Lífeyrisdeildin – námskeið
Láttu ekki plata þig — fræðsla um öryggi á netinu
Þriðjudaginn 10. nóvember kl. 13.00–15.00. Grettisgötu 89, 1. hæð.
Leiðbeinandi: Steinarr Kristján Ómarsson, lögreglufulltrúi hjá Tölvurannsóknardeild LRH.
Orlofshúsin okkar
Veturinn er frábær tími til að fara aðeins út fyrir bæinn, njóta norðurljósanna og hlaða batteríin. Um að gera að athuga hvort eitthvað sé laust í orlofshúsum Sameykis á komandi mánuðum.
Hvort sem þú vilt rólega helgi í náttúrunni, gönguferðir í tæra vetrarloftinu eða bara notalega stund fjarri amstri hversdagsins gæti orlofshús verið nákvæmlega það sem þú þarft.
Ertu í ræktinni?
Haustið er oft tími nýrra markmiða og aukinnar hreyfingar. Mörg okkar eru að fara af stað í ræktina, sundið, jógað eða aðra hreyfingu en muna ekki alltaf eftir því að Sameyki veitir styrki til heilsueflingar og líkamsræktar.
Það tekur aðeins örfáar mínútur að kanna réttinn og sækja um.
Tímaritið er að breytast og við viljum heyra frá þér
Við erum að taka Tímarit Sameykis í nýja átt. Okkur langar að segja fleiri sögur af félagsfólkinu okkar, störfunum sem halda samfélaginu gangandi og fólkinu á bak við þau.
Ert þú með sögu að segja? Hefur þú tekið þátt í áhugaverðu verkefni, ert með skemmtilegt áhugamál eða þekkir félagsmann sem á erindi í tímaritið?
Við tökum líka vel á móti hugmyndum að efni, viðtölum og öðru sem gæti gert tímaritið enn betra.
16.000 félagsmenn, 16.000 sögur, eitt Sameyki.
Hafðu samband. Bestu sögurnar finnum við nefnilega oft hjá ykkur.
Í fréttum var þetta helst…
- Dreymir þig um sól, sjó og sand á Tenerife?
- Á annað hundrað komu saman við ráðhúsið
- Uppsagnir, kjaramál og kosningar í brennidepli á fundi trúnaðarmannaráðs
- Smá breyttur taktur á skrifstofunni næstu daga
- Um 120 manns sóttu félagsfund um Stofnun atvinnuveganna
- Síðasti séns að tryggja sér miða á haustfagnað Lífeyrisdeildarinnar 7. október
Fram undan
Trúnaðarmannafundur
- október kl. 08.30–10.00.
Reykjavíkurborg og sveitarfélögin.
Jólaball Sameykis
- desember kl. 14.30–16.30, taktu daginn frá.