Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

Stofnun ársins 2021

Stofnanir ársins 2021 eru Heilsustofnun NFLÍ, Menntaskólinn á Egilsstöðum, Jafnréttisstofa og Frístundamiðstöðin Tjörnin. Hástökkvarar ársins eru Ríkiskaup og Frístundamiðstöðin Miðberg.

Halda áfram

Stofnanir ársins 2021 eru Heilsustofnun NFLÍ, Menntaskólinn á Egilsstöðum, Jafnréttisstofa og Frístundamiðstöðin Tjörnin. Hástökkvarar ársins eru Ríkiskaup og Frístundamiðstöðin Miðberg.

Valið á Stofnun ársins 2021 var tilkynnt á hátíð Sameykis 16. mars 2022 en titlana Stofnun ársins og Stofnun ársins - borg og bær hljóta þær stofnanir sem þykja skara fram úr í þeim þáttum sem könnun Sameykis náði yfir að mati starfsmanna þeirra.

Könnunin náði til um 31 þúsund starfsmanna í opinberri þjónustu, bæði hjá ríki, Reykjavíkurborg, sveitarfélögunum og sjálfseignarstofnunum. Hún er unnin í samstarfi við Fjármála- og efnahagsráðuneytið og Mannauðsdeildar Reykjavíkurborgar og gefur mikilvægar upplýsingar um stöðu starfsmanna á opinbera vinnumarkaðnum. Í henni eru þátttakendur spurðir út í níu þætti í starfsumhverfinu þ.e. trúverðugleika stjórnenda, starfsanda, launakjör, vinnuskilyrði, sveigjanleika í starfi, sjálfstæði í starfi, ímynd stofnunar, ánægju og stolt og jafnrétti. Markmiðið með að velja fyrirmyndarstofnanir er að hvetja stjórnendur stofnana til að huga að mannauðsmálum og auka umræðu um aðbúnað og líðan starfsmanna á vinnustöðum. Alls fengust gild svör frá rúmlega 13.300 starfsmönnum og svarhlutfallið var 43 prósent.

Vinningshafar - Ríki og sjálfseignarstofnanir

Vinningshafar - Borg og bær

Framkvæmd könnunar

Aðaltöflur - Ríki og sjálfseignarstofnanir

Aðaltöflur - Borg og bær

Helstu niðurstöður - allar stofnanir

Heildarniðurstöður - 13.300 svör

Niðurstöður eftir þáttum

Niðurstöður í sérriti PDF

Viltu vita meira?

Málþing um um framtíðarvinnumarkaðinn sem haldið var 16. mars 2022

Happdrætti Stofnun ársins 2021