UPPLÝSINGAR UM KJARAMÁL

Fæðingarorlof

Foreldrar öðlast rétt til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði eftir að hafa verið samfellt í 6 mánuði á innlendum vinnumarkaði fyrir fæðingardag barns eða þann tíma þegar barn kemur inn á heimili við ættleiðingu eða varanlegt fóstur. Starfshlutfall í hverjum mánuði þarf að vera a.m.k. 25%. Allar upplýsingar og umsóknareyðublað má finna á www.faedingarorlof.is (http://www.faedingarorlof.is/). Símanúmer Fæðingarorlofssjóðs er 582 4840.

Munið að setja X-ið!

Þegar sótt er um úr Fæðingarorlofssjóði þarf að fylla út umsókn hjá Vinnumálastofnun. Á umsóknareyðublaðinu eru reitir þar sem umsækjandi er beðinn um að setja x þar sem það á við, m.a. hvort viðkomandi óski eftir því að stéttarfélagsgjöld verði dregin frá greiðslum úr fæðingarorlofssjóði. Þeir sem merkja x við þann reit teljast félagsmenn í viðkomandi stéttarfélagi. Réttarstaða hinna sem ekki kjósa að krossa í þennan reit er hins vegar önnur. Þeir teljast ekki félagsmenn á meðan á fæðingarorlofi stendur og missa því rétt úr styrktar- og sjúkrasjóði, orlofssjóði og starfsmenntunarsjóði. Með öðrum orðum, til að halda sjóðsréttindum í fæðingarorlofi er nauðsynlegt að greiða stéttarfélagsgjald. Sé það greitt greiðir fjölskyldu- og styrktarsjóður (FOS) mótframlag til sjóða BSRB og sjóðfélagi heldur öllum sínum réttindum og heldur áfram að vinna sér inn réttindi meðan á fæðingarorlofi stendur. Engin lagaheimild er fyrir Vinnumálastofnun að draga stéttarfélagsgjöld óumbeðið af greiðslum í fæðingarorlofi. Því er óhjákvæmilegt að hafa spurningu á eyðublaðinu vegna fæðingarorlofsgreiðslu um hvort umsækjandi vilji vera áfram í sínu félagi og þar með greiða til þess félagsgjöld. Er því nauðsynlegt að minna félagsmenn á það að standa vörð um réttindi sín og félagsaðild og krossa í viðeigandi reit.

Lög um fæðingarorlof (http://www.althingi.is/lagas/131a/2000095.html) Lögin taka til skilyrða fyrir greiðslum, lágmarkstíma, viðmiðunartímabils, hámarks, foreldris sem ekki er á innlendum vinnumarkaði á viðmiðunartímabilinu, ef um andlát foreldris er að ræða og leiðréttinga á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði.

Ekki gleyma að sækja einnig um fæðingarstyrk til Sameykis.

Fæðingarstyrkur (http://sfr.is/styrkir-sjodir/styrkir/) er greiddur úr Styrktar-og sjúkrasjóði Sameykis. Þú getur sótt um inn á "mínum síðum".