Styrktar- og sjúkrarsjóður
Skilyrði fyrir styrk
- Styrkir eru ekki veittir vegna kostnaðar sem stofnað var til áður en starf það hófst sem gefur rétt til aðildar að sjóðnum.
- Félagsfólk þarf að vera í starfi þegar sótt er um styrki eða velja að greiða stéttarfélagsgjöld á meðan á atvinnuleit eða fæðingarorlofi stendur.
- Sjóðfélagi sem hættir störfum vegna aldurs eða örorku á rétt í 6 mánuði eftir starfslok.
Styrkir úr styrktar- og sjúkrasjóði
Afgreiðsla getur tekið tvær vikur
Reikningar geta að hámarki verið 12 mánaða gamlir
Sjúkraþjálfun og meðferðir
50% af reikningi (að hámarki 42.000 kr. á tólf mánuðum)
Félagar geta fengið 50% endurgreitt, allt að 42.000 kr. á tólf mánuðum vegna sjúkraþjálfunar, sjúkranudds, hnykklækninga og sambærilegra meðferða. Innlegg eru ekki styrkt.
Krabbameinsleit og hjartavernd
10.000 kr. (Ristil- og blöðruhálsskoðun) / 20.000 kr. (Áhættumat hjá Hjartavernd)
Ristil-, blöðruháls eða leghálsskoðun er styrkt um allt að 10.000 kr. Áhættumat hjá Hjartavernd eða Heilsuvernd er styrkt um allt að 20.000 kr. á ári.
Dvöl á heilsu- eða meðferðarstofnun
3.750 kr. á dag í allt að 28 daga á ári
Greitt er allt að 3.750 kr. á dag í allt að 28 daga á ári, eftir reikningi og staðfestingu á dvöl. Greitt vegna meðferðar á heilsustofnun eða eftirmeðferðar vegna áfengis- og vímuefnameðferðar.
Sálfræði og ráðgjöf
50% af reikningi (hámark 80.000 kr. á tólf mánuðum)
Greitt er 50% af reikningi, mest 80.000 kr. á tólf mánuðum, vegna viðtala hjá sálfræðingi, félagsráðgjafa, fjölskylduráðgjafa eða listmeðferðarfræðingi. Tímar sem eru niðurgreiddir af heilsugæslu/Sjúkratryggingum eru ekki styrktir.
Líkamsrækt
25.000 kr. á tólf mánuðum
Styrkur allt að 25.000 kr. á tólf mánuðum fyrir líkamsrækt, sund, skíði og sambærilega hreyfingu. Búnaður er ekki styrktur.
Gleraugu eða linsur
20% af reikningi (hámark 30.000 kr. á 36 mánaða fresti)
20% af kostnaði, mest 30.000 kr. (á 36 mánaða fresti).
Heyrnartæki
150.000 kr. (50% af kostnaði umfram 50.000 kr., á 36 mánaða fresti)
Greitt er 50% af kostnaði umfram 50.000 kr., mest 150.000 kr., á 36 mánaða fresti.
Laser- og augnaðgerðir
50.000 kr. fyrir eitt auga / 100.000 kr. fyrir bæði (á 36 mánaða fresti)
50.000 kr. fyrir eitt auga eða 100.000 kr. fyrir bæði (á 36 mánaða fresti).
Dánarbætur
200.000 kr. / 100.000 kr. eftir tilviki
- 200.000 kr. við andlát virks sjóðfélaga.
- 100.000 kr. við andlát fyrrverandi sjóðfélaga (innan 5 ára frá starfslokum).
- 100.000 kr. við andlát barna 18 ára og yngri.
Fæðingarstyrkur
200.000 kr. ef greidd félagsgjöld eru 50.000 kr. eða meira
Styrkur byggir á greiddum félagsgjöldum síðustu 12 mánuði. Ef greitt hefur verið 50.000 kr. eða meira er styrkurinn 200.000 kr. Tví- og þríburafæðingar hækka styrkinn.
Sérstakar aðstæður vegna veikinda
Engin föst upphæð (metið af stjórn)
Sjóðurinn getur veitt sérstyrk ef veikindi valda verulegum útgjöldum eða tekjumissi. Umsókn fer alltaf fyrir stjórn.
Ferðastyrkur vegna læknismeðferðar
10–25.000 kr. eftir vegalengd (hámark 3 ferðir á 12 mánuðum)
Ef Sjúkratryggingar taka ekki þátt í ferðakostnaði, greiðir sjóðurinn 10–25.000 kr. eftir vegalengd (fram og til baka). Hámark þrjár ferðir á 12 mánaða tímabili.
Tæknifrjóvgun
150.000 kr. á 12 mánuðum (30% af kostnaði)
Endurgreitt er 30% af kostnaði, mest 150.000 kr. á 12 mánuðum. Lyf eru ekki innifalin.
Tannlækningar
110.000 kr. (50% endurgreiðsla umfram 50.000 kr., á 24 mánaða fresti)
50% endurgreitt af kostnaði sem er umfram 50.000 kr., hámark 110.000 kr., á 24 mánaða fresti.