Fréttabréf Lífeyrisdeildar Vor 2026

Námskeið um stafræna hæfni, ný stjórn deildarinnar, aðalfundur 14. apríl, sumarferðir á Snæfellsnes og ýmislegt gagnlegt fyrir félaga í lífeyrisdeild.

Útgefið: mars 2026
Ábyrgðarmaður: Kári Sigurðsson
Umsjón: Jakobína Þórðardóttir

Fá fréttabréfið sent heim

Hvað er stafræn hæfni? – Námskeið fyrir félaga í lífeyrisdeild

Grettisgötu 89, 1. hæð, fimmtudaginn 19. mars kl. 13–15.
Leiðbeinandi: Atli Thor

Á þessu praktíska námskeiði „Stafræn hæfni“ skerpum við á kunnáttu og viðhorfi til daglegrar notkunar tæknilausna. Markmiðið er að efla öryggi, gagnrýni og getu til að beita tækni á skilvirkan hátt í daglegu starfi.

Farið verður yfir fjóra flokka: „Öryggi“, „Framkvæmd“, „Samskipti“ og „Upplýsingar“.


Gönguhópur Lífeyrisdeildar

Göngur um Fossvogskirkjugarð eru síðasta fimmtudag í mánuði klukkan 10:00.

Pétur Ásbjörnsson stýrir göngunum og er með mismunandi þema fyrir hverja göngu. Gönguferðirnar hefjast fyrir framan Fossvogskirkju. Félagar í deildinni eru hvattir til þess að mæta á staðinn og taka þátt.


Kári Sigurðsson, formaður Sameykis, ásamt stjórn Lífeyrisdeildar Sameykis

Ný stjórn skipuleggur starfið á nýju ári

Kári Sigurðsson, formaður Sameykis, ásamt stjórn Lífeyrisdeildar Sameykis. Frá vinstri: Hildur Gunnarsdóttir, Þórdís Richter, Marías Sveinsson, Hafdís Vilhjálmsdóttir, Sveinn Pálsson og Emilía Guðrún Jónsdóttir. Pétur Ásbjörnsson vantar á myndina.

Stjórn Lífeyrisdeildar hefur fundað reglulega frá síðasta aðalfundi deildarinnar. Stjórnir Sameykis og Lífeyrisdeildarinnar funduðu í byrjun janúar. Þar var farið yfir fyrirhugaðar breytingar sem stjórn Sameykis hefur tekið ákvörðun um. Ákveðið hefur verið að stjórn Lífeyrisdeildarinnar fái ákveðna upphæð til reksturs deildarinnar og að stjórnin geti tekið ákvarðanir um hvernig þeim fjármunum verði varið. Stjórn Lífeyrisdeildar hefur verið að fara yfir og skipuleggja starfið í samræmi við nýjar áherslur stjórnar Sameykis.


Aðalfundur Lífeyrisdeildar Sameykis

Þriðjudaginn 14. apríl kl. 13 að Grettisgötu 89, 1. hæð.

Formaður Sameykis, Kári Sigurðsson, flytur stutt ávarp.

Dagskrá aðalfundar samkvæmt starfsreglum deildarinnar

  1. Stjórn deildarinnar gefur skýrslu um starfsemina á síðastliðnu ári.
  2. Lagðir fram til samþykktar endurskoðaðir reikningar deildarinnar fyrir síðastliðið ár.
  3. Gerð grein fyrir störfum og reikningum símenntunarsjóðs.
  4. Tekin ákvörðun um tillögur til breytinga á starfsreglum deildarinnar.
  5. Kosið í stjórn á oddaári: á ekki við á þessu ári.
  6. Önnur mál.

Félagar í lífeyrisdeild í sumarferð á Snæfellsnesi

Sumarferðir lífeyrisdeildar 2026

Í sumar verður boðið upp á ferðir á Snæfellsnes undir leiðsögn Harðar Gíslasonar. Hægt verður að velja á milli þriggja dagsetninga: þriðjudaginn 23. júní, fimmtudaginn 25. júní og þriðjudaginn 29. júní.

Keyrt verður í Borgarnes og út á Snæfellsnes þar sem áhugaverðir staðir verða skoðaðir. Á Narfeyrarstofu í Stykkishólmi verður boðið upp á rjómalagaða sveppasúpu og brauð í hádeginu. Við munum dvelja í Stykkishólmi og skoða fallegt umhverfi þar. Í lok dags verður boðið upp á kvöldverð á Hótel Hamri í Borgarfirði. Nánari lýsing á ferðinni verður komin á vefinn fyrir 13. apríl þegar skráning hefst.

Félagsfólk má bjóða með sér einum gesti. Verð er 9.000 kr. á mann með öllu inniföldu. Miðasala hefst 13. apríl og hægt er að kaupa miða í sumarferðirnar á orlofsvef Sameykis.


Orlofshús Sameykis

Orlofshús og orlofstilboð

Félagar í Lífeyrisdeild geta sótt um orlofshús í sumar, fyrir utan sjö vikna tímabil yfir hásumarið þegar flestir sem eru í starfi sækjast eftir orlofshúsum. Þetta verður á tímabilinu 19. júní – 7. ágúst 2026. Ef laus hús eru eftir að úthlutun lýkur hefur fólk í Lífeyrisdeild sama rétt og annað félagsfólk til þess að bóka orlofshús. Önnur tímabil standa félögum í Lífeyrisdeild Sameykis opin.

Félagsfólk í lífeyrisdeild getur leigt sér orlofshús yfir vetrartímann virka daga í Vaðnesi og Munaðarnesi á tilboðsverði, 2.500 kr. nóttina frá mánudegi til föstudags. Til þess að fá þennan afslátt þarf að hafa samband við skrifstofu í síma 525 8330.

Á orlofsvef Sameykis er einnig hægt að kaupa gjafabréf í flug, ferðaávísanir, veiðikort og fleira. Við hvetjum ykkur til að fylgjast með á orlofsvef Sameykis.


Símenntunarsjóður lífeyrisdeildar

Félagar í lífeyrisdeild Sameykis hafa aðgang að sérstökum símenntunarsjóði. Hægt er að sækja um styrki vegna námskeiða og fræðslu. Greiddir eru styrkir úr sjóðnum tvisvar á ári, það er 15. maí og 15. nóvember.

Frestur til að senda inn umsóknir í vor er 10. maí.

Félagsfólk getur fengið að hámarki 32.000 kr. styrk yfir almanaksárið samkvæmt framlögðum gildum kvittunum með kennitölu félagsmanns og fræðsluaðila. Greiðslur geta þó orðið lægri ef umsóknir eru margar. Ekki er greitt fyrir námskeið meira en ár aftur í tímann.

Sótt er um styrk á vef Sameykis.


Gott að vita – fyrir alla

Gott að vita námskeið Sameykis standa öllu félagsfólki til boða. Við hvetjum félaga í lífeyrisdeildinni til að kynna sér hvað er í boði. Upplýsingar má finna í tímariti Sameykis og á vef Framvegis.


Skráning í lífeyrisdeild

Nauðsynlegt er að skrá sig í lífeyrisdeildina þegar fólk hættir störfum. Það gerist ekki sjálfkrafa. Hægt er að skrá sig á vefsíðu félagsins undir lífeyrisdeild. Endilega látið vini og félaga sem eiga rétt á aðild vita, ef þeir hafa ekki skráð sig.


Eldri fréttabréf

Fréttabréf Lífeyrisdeildar kemur út tvisvar á ári, að vori og hausti. Eldri tölublöð eru á PDF-sniði.