Kjarasamningur við Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu (SFV)
SVF og Sameyki
Hér fyrir neðan finnur þú kjarasamninga milli viðsemjenda ásamt upplýsingum um ýmis réttindi. Samningur Sameykis og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu nær til félagsmanna sem starfa hjá:
Alzheimersamtökunum, Andrastöðum - Embla ses., Eir, Skjól og Hömrum, Grundarheimilunum (Ás, Grund, Mörk), Heilsustofnun NLFÍ, Hlíðabæ/Múlabæ, Hrafnistu, Kjarki endurhæfingu, MS setrinu, Reykjalundi endurhæfingu, SÁÁ, Sóltúni (Öldungi) og Sólvangi (Sóltún öldrunarþjónusta) og Vigdísarholti (Sunnuhlíð, Seltjörn, Skjólgarður).
Kjarasamningur
Orlofs- og desemberuppbót
| Ár | Orlofsuppbót | Desemberuppbót |
|---|---|---|
| 2024 | 58.000 kr. | 106.000 kr. |
| 2025 | 60.000 kr. | 110.000 kr. |
| 2026 | 62.000 kr. | 114.000 kr. |
| 2027 | 64.000 kr. | 118.000 kr. |
Ár
2024
Ár
2025
Ár
2026
Ár
2027
Reglur um desemberuppbót
Starfsmaður sem er við störf í fyrstu viku nóvembermánaðar skal fá greidda persónuuppbót 1. desember ár hvert miðað við fullt starf tímabilið 1. janúar til 31. október. Persónuuppbót er föst krónutala og tekur ekki hækkunum skv. öðrum ákvæðum kjarasamningsins. Á persónuuppbót reiknast ekki orlofsfé. Hafi starfsmaðurinn gegnt hlutastarfi eða unnið hluta úr ári, skal hann fá greitt miðað við starfshlutfall á framangreindu tímabili. Á sama hátt skal einnig starfsmaður sem látið hefur af starfi en starfað hefur samfellt í a.m.k. 3 mánuði (13 vikur) á árinu, fá greidda persónuuppbót, miðað við starfstíma og starfshlutfall. Sama gildir þótt starfsmaður sé frá störfum vegna veikinda eftir að greiðsluskyldu stofnunar.
Tímavinnufólk skal fá greidda persónuuppbót í desember og hefur óskert upphæð miðast við 1.504 unnar dagvinnustundir á ofangreindu tímabili.
Reglur um orlofsuppbót
Akstur og dagpeningar
Orlofsréttur
Orlofsárið er frá 1. maí–30. apríl og á því tímabili ávinna starfsmenn sér orlof.
Orlofsréttur er 30 dagar miðað við fullt starf. Ávinnsla orlofs skal vera hlutfallsleg miðað við starfshlutfall og starfstíma starfsmanns. (240 stundir miðað við 40 stunda vinnuviku).
Starfsmenn eiga ávallt rétt á fullu orlofi. Réttur starfsmanna til launa í orlofi miðast hins vegar við starfstíma og starfshlutfall.
Sumarorlofstímabil
1․ maí til 15. september
Sumarorlof er á tímabilinu 1. maí til 15. september. Starfsmenn eiga rétt á að taka út að minnsta kosti 120 vinnustundir. (15 daga) á sumarorlofstímabili.
Ef orlofið er tekið eftir að sumarorlofstímabili lýkur skal sá hluti orlofsins lengjast um 25% sé það að ósk yfirmanns, fá það skriflegt. Ath. þetta á aðeins við um það orlof sem eftirstendur þegar sumarorlofstímabili lýkur en á ekki við þegar starfsmenn taka út orlof fyrirfram fyrir orlofstíma.
Útreikningur orlofsstunda að vetri
Ef ósk yfirmanns er um að starfsmaður taki orlof eftir að sumarorlofstímabili lýkur skal sá hluti orlofsins lengjast um 25%.
Einnig má hugsa þetta þannig að í staðinn fyrir að fjölga (eða fækka) orlofsstundum eftir árstímum, þá drögum við mismikið frá áunnum orlofstímum eftir því hvenær fríið er tekið. Áunnar orlofsstundir mynda því nokkurs konar höfuðstól.
- Á sumrin kostar 1 klukkustund í fríi 1 orlofstíma.
- Á veturna kostar 1 klukkustund í fríi 0,8 orlofstíma.
Ákvörðun orlofs
Yfirmanni er skylt að koma til móts við óskir starfsmanna um orlofstíma verði því við komið vegna starfa stofnunarinnar og ákveður í samráði við starfsmenn hvenær orlof skuli veitt.
Yfirmanni ber að kanna óskir starfsmanna um orlofstöku, að veita orlof á sumarorlofstíma sé þess óskað af hálfu starfsmanna og tilkynna um tímasetningu orlofs eins fljótt og auðið er og í síðasta lagi mánuði áður en orlofstaka hefst.
Orlofsfé
Starfsmenn ávinna sér orlofslaun (orlofsfé) af yfirvinnu og álagsgreiðslum. Orlofsféð er:
13,04% af yfirvinnu og álagsgreiðslum hjá starfsmönnum. Orlofsfé er lagt í banka og er laust til útborgunar eftir 10. maí ár hvert.
Veikindi í orlofi
Starfsmaður kallaður til vinnu í orlofi
Ef starfsmaður er kallaður til vinnu í orlofi er valkvætt að:
- Greiða starfsmanni yfirvinnu fyrir þá vinnu sem unnin á orlofstímanum en þá lengist orlof starfsmanns ekki.
eða - Starfsmaður fær hefðbundin laun fyrir fyrir vinnu sína á orlofstímanum og orlofið lengist sem unnum tíma í orlofi nemur.
Þar sem báðar leiðir eru færar er best fyrir starfsmann að ganga frá því fyrirfram hvernig vinna á orlofstíma er gerð upp.
Fatapeningar, fæðisfé og meðaltalsverð
Fatapeningar
Á heilbrigðisstofnun þar sem þess er krafist að starfsmaður noti eigin fatnað í stað vinnuslopps eða álíka hlífðarfatnaðar skv. gr. 8.2, er vinnuveitanda í stað þess heimilt að greiða starfsmanni sérstaka fatapeninga. 3.800 kr. á mánuði* m.v. fullt starf í dagvinnu.
*Greiðslan breytist á þriggja mánaða fresti í samræmi við fatalið vísitölu neysluverðs (031 Föt). Grunnvísitala er mars 2024, 178,2 stig (miðað við undirvísitölur frá 2008).
Fæðispeningar
Starfsmenn sem hafa ekki aðgang að matstofu
Fæðispeningar
Vaktavinnufólk
Meðaltalsverð
Veikindaréttur
Veikindaréttur ræðst af þjónustualdri hjá ríkinu, sveitarfélögum og sjáfseignarstofnunum kostuðum af almennafé. Veikindaréttur starfsmanna sem vinna hjá ríki, sveitarfélögum og sjálfseignarstofnunum færist á milli stéttarfélaga.
Á fyrstu þremur mánuðum ráðningar er fyrri þjónustualdur hjá ríkinu, sveitarfélögum og sjálfseignarstofnunum ekki metinn nema viðkomandi starfsmaður hafi unnið samfellt hjá fyrri vinnuveitenda í 12 mánuði eða meira.
Við mat á veikindarétti eru skoðaðir síðustu 12 mánuðir.
Allir dagar eru taldir í veikindum líka laugardagar og sunnudagar.
Réttur til launa vegna veikinda og slysa
Gildir um fast- og lausráðna í minnst tvo mánuði
| Starfstími | Veikindaréttur | Réttur v. slys/atvinnusj. |
| 0–3 mánuði í starfi | 14 dagar | +91 dagur |
| Næstu 3 mánuði | 35 dagar | +91 dagur |
| Eftir 6 mánuði | 119 dagar | +91 dagur |
| Eftir 1 ár | 133 dagar | +91 dagur |
| Eftir 7 ár | 175 dagar | +91 dagur |
| Eftir 12 ár | 273 dagar | |
| Eftir 18 ár | 360 dagar |
Í fyrstu viku veikinda fær starfsmaður allar fastar greiðslur (þ.m.t. fasta yfirvinnu og vaktaálag). Eftir það greiðist meðaltal breytilegrar yfirvinnu síðustu 12 mánaða.
Laun greiðast þó ekki lengur en ráðningu er ætlað að standa.
Hlutaveikindi
Um útreikning hlutaveikinda
Vottorð
Læknisvottorð skal leggja fram ef þess er krafist og ef veikindi vara lengur en 5 daga. Vinnuveitandi endurgreiðir kostnað vegna læknisvottorðs og viðtals við öflunar þess.
Eftir 1 mánaðar veikindi þarf starfshæfisvottorð áður en störf hefjast að nýju.
Veikindi barna
Orlof og veikindi
Langvarandi veikindi
Starfsmaður á rétt á launalausu leyfi jafn lengi og veikindaréttur hans er. Að honum loknum má sækja um sjúkradagpeninga hjá Styrktarsjóði Sameykis (80% af meðaltalslaunum).
| Starfstími | Réttur til sjúkradagpeninga hjá Styrktarsjóði |
| 6–12 mánuðir | 45 dagar |
| yfir 1 ár | 90 dagar |
| yfir 18 ár | 45 dagar (ef viðkomandi á ekki rétt annars staðar) |
Sjúkradagpeningar greiðast ekki lengur en ráðningu er ætlað að standa.
Lausnarlaun
Starfsmaður á rétt á að halda starfi sínu launalaust jafn lengi og veikindaréttur hans er, að þeim tíma liðnum getur vinnuveitandi gert kröfu um starfslok. Ef ljóst er að starfsmaðurinn kemur ekki til með að vera meira úti á vinnumarkaði er hægt að fara fram á lausnarlaun. Lausnarlaun eru starfslokalaun í þrjá mánuði (ATH þetta á aðeins við þegar um endanleg starfslok er að ræða).
Við andlát starfsmanns eru greidd þriggja mánaða laun til maka hafi veikindaréttur ekki verið tæmdur.
| Starfstími | Veikindaréttur | Réttur til v.slys/atvinnusj. |
| Á 1. mánuði í starfi | 2 dagar | +91 dagur |
| Á 2. mánuði í starfi | 2 | +91 dagur |
| Á 3. mánuði í starfi | 6 | +91 dagur |
| Eftir 3 mánuði í starfi | 14 dagar | +91 dagur |
| Eftir 6 mánuði í starfi | 30 dagar | +91 dagur |
Greiðslur fylgja sömu reglum um fasta og breytilega yfirvinnu og hjá öðrum starfsmönnum. Á fyrstu viku veikinda fær starfsmaður allar fastur greiðslur en eftir fyrstu viku fær starfsmaður að auki meðaltal af breytilegri yfirvinnu síðustu 12 mánaða.
Laun eftirlaunaþega í tímavinnu skal vera 1 mánuður á hverjum 12 mánuðum. Launin miðast við meðaltal dagvinnulauna síðustu 3 mánaða.
Laun greiðast ekki lengur en ráðningu er ætlað að standa.
Valkvæðar aðgerðir
Lýtaaðgerðir, glasa- og tæknifrjóvganir eða áfengismeðferð
Fjarvistir vegna lýtaaðgerða, glasa- og tæknifrjóvgunar eða áfengismeðferðar teljast ekki veikindi samkvæmt kjarasamningum.
Starfsmaður sem er frá vinnu vegna slíkra aðgerða getur átt von á að þurfa þarf að nýta orlof eða óska eftir launalausu leyfi nema annað sé ákveðið á vinnustað.
Misjafnt er hvernig stofnanir koma til móts við starfsmenn en margar stofnanir hafa sett sér reglur varðandi þessi mál.
Yfirvinnu breytt í frí
Heimilt er með samkomulagi að safna frídögum vegna yfirvinnu á þann hátt að yfirvinnutímar komi til uppsöfnunar og frítöku á dagvinnutímabili en yfirvinnuálagið er greitt við næstu reglulegu útborgun. Samkomulag skal vera um töku frísins og það skipulagt þannig að sem minnst röskun verði á starfssemi stofnunar.
Frí samkvæmt framsögðu, vegna undanfarandi almanaksárs, sem ekki hefur verið nýtt fyrir 15. apríl ár hvert, eða við starfslok, skal greitt út á dagvinnutaxta viðkomandi starfsmanns við næstu reglulegu útborgun.
- Starfsmaður fær þá 8 tíma frí fyrir 8 tíma yfirvinnu og yfirvinnuálagið er greitt við næstu reglulegu útborgun, og er það 44,44% af tímakaupi í yfirvinnu.
- Ef starfsmaður tekur út einn tíma í dagvinnu á móti einum tíma í yfirvinnu, hlutfallið 1:1, þá skal atvinnurekandi undantekningarlaust greiða starfsmanni út yfirvinnuálagið!
- Ef samkomulag er um á milli aðila má einnig veita 1,62 klst. í frí fyrir hvern yfirvinnutíma og fellur þá greiðsla yfirvinnuálags niður.
Samningar við starfsmenn sem fela í sér aðrar og minni greiðslur fyrir yfirvinnu skv. ofansögðu eru undirboð á kjarasamningi og því óheimilir