Styrktar- og sjúkrarsjóður

Skilyrði fyrir styrk

Félagar þurfa að greiða félagsgjöld í sex af síðustu tólf mánuðum og síðustu þrjá mánuði samfellt fyrir umsóknardag til að eiga rétt á styrkjum. Ef þú flytur milli aðildarfélaga innan ASÍ eða BSRB getur rétturinn fylgt þér eftir sérstökum reglum.
  • Styrkir eru ekki veittir vegna kostnaðar sem stofnað var til áður en starf það hófst sem gefur rétt til aðildar að sjóðnum.
  • Félagsfólk þarf að vera í starfi þegar sótt er um styrki eða velja að greiða stéttarfélagsgjöld á meðan á atvinnuleit eða fæðingarorlofi stendur.
  • Sjóðfélagi sem hættir störfum vegna aldurs eða örorku á rétt í 6 mánuði eftir starfslok.
Úthlutunarreglur styrktar og sjúkrasjóðs Sameykis

Styrkir úr styrktar- og sjúkrasjóði

Hér finnur þú samantekt á öllum styrkjum sem félagar eiga kost á úr sjóðnum. Styrkupphæðir miða við tólf mánaða tímabil nema annað sé tekið fram.
Sæktu um styrk á Mínum síðum

Afgreiðsla getur tekið tvær vikur

Afgreiðsla umsókna getur tekið um tvær vikur. Umsóknir fyrir fæðingarstyrki og sjúkradagpeninga þurfa að hafa borist fyrir 20. hvers mánaðar og eru afgreiddar um mánaðarmót.

Reikningar geta að hámarki verið 12 mánaða gamlir

Nema annað sé tekið fram geta reikningar sem fylgja umsókn um styrk verið að hámarki 12 mánaða gamlir.

Sjúkraþjálfun og meðferðir 50% af reikningi (að hámarki 42.000 kr. á tólf mánuðum)

Félagar geta fengið 50% endur­greitt, allt að 42.000 kr. á tólf mánuðum vegna sjúkr­a­þjálfunar, sjúkranudds, hnykk­lækninga og sambæri­legra með­ferða. Innlegg eru ekki styrkt.

Krabbameinsleit og hjartavernd 10.000 kr. (Ristil- og blöðruhálsskoðun) / 20.000 kr. (Áhættumat hjá Hjartavernd)

Ristil-, blöðruháls eða leghálsskoðun er styrkt um allt að 10.000 kr. Áhættumat hjá Hjartavernd eða Heilsuvernd er styrkt um allt að 20.000 kr. á ári.

Dvöl á heilsu- eða meðferðarstofnun 3.750 kr. á dag í allt að 28 daga á ári

Greitt er allt að 3.750 kr. á dag í allt að 28 daga á ári, eftir reikningi og stað­festingu á dvöl. Greitt vegna meðferðar á heilsustofnun eða eftirmeðferðar vegna áfengis- og vímuefnameðferðar.

Sálfræði og ráðgjöf 50% af reikningi (hámark 80.000 kr. á tólf mánuðum)

Greitt er 50% af reikningi, mest 80.000 kr. á tólf mánuðum, vegna viðtala hjá sálfræðingi, félags­ráðgjafa, fjölskyldu­ráðgjafa eða list­meðferðar­fræðingi. Tímar sem eru niður­greiddir af heilsu­gæslu/Sjúkra­tryggingum eru ekki styrktir.

Líkamsrækt 25.000 kr. á tólf mánuðum

Styrkur allt að 25.000 kr. á tólf mánuðum fyrir líkamsrækt, sund, skíði og sambærilega hreyfingu. Búnaður er ekki styrktur.

Gleraugu eða linsur 20% af reikningi (hámark 30.000 kr. á 36 mánaða fresti)

20% af kostnaði, mest 30.000 kr. (á 36 mánaða fresti).

Heyrnartæki 150.000 kr. (50% af kostnaði umfram 50.000 kr., á 36 mánaða fresti)

Greitt er 50% af kostnaði umfram 50.000 kr., mest 150.000 kr., á 36 mánaða fresti.

Laser- og augnaðgerðir 50.000 kr. fyrir eitt auga / 100.000 kr. fyrir bæði (á 36 mánaða fresti)

50.000 kr. fyrir eitt auga eða 100.000 kr. fyrir bæði (á 36 mánaða fresti).

Dánarbætur 200.000 kr. / 100.000 kr. eftir tilviki
  • 200.000 kr. við andlát virks sjóðfélaga.
  • 100.000 kr. við andlát fyrrverandi sjóðfélaga (innan 5 ára frá starfslokum).
  • 100.000 kr. við andlát barna 18 ára og yngri.
Fæðingarstyrkur 200.000 kr. ef greidd félagsgjöld eru 50.000 kr. eða meira

Styrkur byggir á greiddum félagsgjöldum síðustu 12 mánuði. Ef greitt hefur verið 50.000 kr. eða meira er styrkurinn 200.000 kr. Tví- og þríburafæðingar hækka styrkinn.

Sérstakar aðstæður vegna veikinda Engin föst upphæð (metið af stjórn)

Sjóðurinn getur veitt sérstyrk ef veikindi valda verulegum útgjöldum eða tekjumissi. Umsókn fer alltaf fyrir stjórn.

Ferðastyrkur vegna læknismeðferðar 10–25.000 kr. eftir vegalengd (hámark 3 ferðir á 12 mánuðum)

Ef Sjúkratryggingar taka ekki þátt í ferðakostnaði, greiðir sjóðurinn 10–25.000 kr. eftir vegalengd (fram og til baka). Hámark þrjár ferðir á 12 mánaða tímabili.

Tæknifrjóvgun 150.000 kr. á 12 mánuðum (30% af kostnaði)

Endurgreitt er 30% af kostnaði, mest 150.000 kr. á 12 mánuðum. Lyf eru ekki innifalin.

Tannlækningar 110.000 kr. (50% endurgreiðsla umfram 50.000 kr., á 24 mánaða fresti)

50% endurgreitt af kostnaði sem er umfram 50.000 kr., hámark 110.000 kr., á 24 mánaða fresti.