Sjálfseignarstofnanir • Vinningshafar 2025
Helstu niðurstöður
Sérstakur listi er fyrir sjálfseignarstofnanir og fyrirtæki í almannaþjónustu. Alls náðu sjö stofnanir þátttökuskilyrðum. Efst á lista meðal sjálfseignarstofnanna og fyrirtækja er Gló stuðningsfélag sem kemur nýtt inn á lista en það hét áður Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra. Heilsustofnunin NLFÍ er í öðru sæti en var í fyrsta sæti í fyrra. LSR er í þriðja sæti en var í öðru sæti í fyrra. LSR og Heilsustofnunin hafa verið ofarlega á lista árum saman og þær buðu öllu starfsfólki þátttöku, óháð stéttarfélagsaðild. Niðurstöður Gló stuðningsfélags eru byggðar á svörum Sameykisfélaga einvörðungu. Gló stuðningsfélag vinnur að „aukinni samfélagsþátttöku barna og ungmenna með fjölbreyttar áskoranir og stuðningsþarfir,“ eins og segir á heimasíðu félagsins.
Sameyki óskar starfsfólki og stjórnendum Gló stuðningsfélags innilega til hamingju með þennan glæsilega árangur og óskar þeim alls hins besta í framtíðinni.
| Vinnustaður | Heildareinkunn | Vikmörk | Stjórnun | Starfsandi | Launakjör | Vinnuskilyrði | Sveigjanleiki vinnu | Sjálfstæði í starfi | Ímynd stofnunar | Ánægja og stolt | Jafnrétti | |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Gló stuðningsfélag ** | 4,408 | +/-0,20 | 4,44 | 4,61 | 3,82 | 4,16 | 4,23 | 4,59 | 4,61 | 4,70 | 4,36 | |
| Heilsustofnun NLFÍ * | 4,384 | +/-0,04 | 4,39 | 4,53 | 3,33 | 4,07 | 4,46 | 4,57 | 4,72 | 4,66 | 4,54 | |
| LSR * | 4,332 | +/-0,03 | 4,46 | 4,32 | 3,74 | 4,27 | 4,44 | 4,29 | 4,43 | 4,53 | 4,36 | |
| Ás styrktarfélag * | 4,022 | +/-0,06 | 3,96 | 4,12 | 3,27 | 3,68 | 4,25 | 4,23 | 4,05 | 4,10 | 4,42 | |
| Matís ohf, * | 3,967 | +/-0,07 | 4,01 | 4,17 | 2,40 | 4,06 | 4,34 | 4,22 | 3,99 | 3,85 | 4,35 | |
| Orkubú Vestfjarða ohf * | 3,750 | +/-0,12 | 3,42 | 3,90 | 3,34 | 3,63 | 4,28 | 3,87 | 3,45 | 3,97 | 3,99 | |
| Félagsbústaðir hf, * | 3,521 | +/-0,08 | 3,60 | 3,38 | 2,83 | 3,54 | 4,21 | 4,12 | 3,03 | 3,13 | 3,89 |
Vinnustaður
Gló stuðningsfélag **
Vinnustaður
Heilsustofnun NLFÍ *
Vinnustaður
LSR *
Vinnustaður
Ás styrktarfélag *
Vinnustaður
Matís ohf, *
Vinnustaður
Orkubú Vestfjarða ohf *
Vinnustaður
Félagsbústaðir hf, *
Allir starfsmenn ríkisstofnana og Reykjavíkurborgar fengu senda könnun Sameykis á Stofnun ársins.
* Þessar stofnanir eru ekki ríkisstofnanir en eru einnig með alla starfsmenn.
** Einungis Sameykis félagar.