Kosningar og aðalfundur 2027

Framboð

Opið fyrir framboð

Búið er að opna fyrir framboð og tilnefningar til stjórnar, sjóðsstjórna og kjörstjórnar.

Kosning

8.–17. mars 2027

Rafræn kosning til stjórnar. Henni lýkur sólarhring fyrir aðalfund.

Aðalfundur

18. mars

Aðalfundur Sameykis 2027. Úrslit stjórnarkjörs eru kynnt á fundinum og kosið í stjórnir.

Vilt þú hafa áhrif?

Kosið verður til stjórnar Sameykis, stjórnar Orlofssjóðs, Starfsmenntunarsjóðs, Vinnudeilusjóðs og Styrktar- og sjúkrasjóðs, auk kjörstjórnar, á aðalfundi félagsins 18. mars 2027.

Starfsemi Sameykis byggist á þátttöku félagsfólks sem situr í stjórnum, ráðum og nefndum og hefur þar áhrif á réttindamál, fræðslu, sjóðastarf og þá þjónustu sem félagið veitir.

Það þarf ekki að hafa setið áður í stjórn eða nefnd. Það sem skiptir mestu máli er áhugi, ábyrgð og vilji til að leggja sitt af mörkum. Fjölbreytt reynsla, ólík sjónarmið og breið þátttaka styrkja félagið og hjálpa því að þróast í takt við þarfir félagsfólks um allt land.

Svona býður þú þig fram

  • Allt fullgilt félagsfólk er kjörgengt. Þú þarft ekki reynslu af trúnaðarstörfum.
  • Kynntu þér hlutverkin hér að neðan og starfsreglur stjórnar.
  • Sendu inn framboð eða tilnefningu - uppstillingarnefnd fer yfir öll framboð.

Framboði til stjórnar fylgja meðmæli 25 fullgildra félagsmanna. Sækja eyðublað fyrir meðmæli (PDF)

Hvað er kosið um?

Kosið er í stjórn félagsins með rafrænni allsherjaratkvæðagreiðslu. Í stjórnir sjóða, kjörstjórn og varastjórn er kosið á aðalfundi.

Formann Sameykis

[Texti um formannskjörið]

Stjórn Sameykis: 14 meðstjórnendur

Fer með æðsta vald félagsins milli aðalfunda. Árið 2027 eru kosnir sjö meðstjórnendur til fjögurra ára og sjö til tveggja ára í rafrænni kosningu. Tveir varamenn eru kosnir á aðalfundi til tveggja ára.

Nánar um stjórn Sameykis

Orlofssjóður

Stjórn sjóðsins sér um rekstur og þróun orlofshúsa og orlofskosta félagsfólks. Kosið er á aðalfundi til tveggja ára.

Nánar um stjórn orlofssjóðs

Starfsmenntunarsjóður

Styður við sí- og endurmenntun félagsfólks með styrkjum til náms og námskeiða. Kosið er á aðalfundi til tveggja ára.

Nánar um stjórn starfsmenntunarsjóðs

Vinnudeilusjóður

Tryggir stuðning við félagsfólk ef til vinnudeilna og verkfalla kemur. Kosið er á aðalfundi til tveggja ára.

Nánar um stjórn vinnudeilusjóðs

Styrktar- og sjúkrasjóður

Veitir styrki og stuðning vegna veikinda, heilsueflingar og annarra aðstæðna. Kosið er á aðalfundi til tveggja ára.

Nánar um stjórn styrktar- og sjúkrasjóðs

Kjörstjórn: 5 aðalmenn og 5 til vara

Ber ábyrgð á framkvæmd kosninga, staðfestir kjörskrá og úrslit. Kosin á aðalfundi til tveggja ára.

Nánar um kjörstjórn

Frambjóðendur

Kynning frambjóðenda birtist hér í janúar og febrúar 2027, þegar framboð liggja fyrir.

Hver frambjóðandi svarar þremur spurningum:

  1. Hvers vegna býður þú þig fram?
  2. Hvað brennur helst á þér?
  3. Hvað viltu sjá þróast hjá Sameyki?

Ætlar þú að bjóða þig fram?

Viltu taka þátt í að skrifa næsta kafla í sögu Sameykis.

Svona fer kosningin fram

Stjórnarkjörið er rafræn allsherjaratkvæðagreiðsla sem stendur í tíu daga. Kjörstjórn sér um framkvæmdina og tryggir að hún fari fram á öruggan hátt.

  1. Kjörskrá. Allt félagsfólk með atkvæðisrétt er á kjörskrá. Atkvæðisrétt hefur félagsfólk sem er ekki í meira en tveggja mánaða vanskilum með félagsgjöld.
  2. Þú kýst rafrænt. Kjörstjórn sendir þér kjörgögn 8. mars. Þú velur að lágmarki fjóra og að hámarki sjö frambjóðendur í hvorri kosningu meðstjórnenda.
  3. Úrslit kynnt. Kosningu lýkur 17. mars. Kjörstjórn staðfestir úrslitin og þau eru kynnt á aðalfundi 18. mars.

Kjörseðill með færri en fjórum eða fleiri en sjö nöfnum er ógildur í viðkomandi kosningu.

Aðalfundur 18. mars 2027

Aðalfundur er æðsta vald félagsins og þar á allt félagsfólk erindi. Á fundinum eru úrslit stjórnarkjörs kynnt, kosið í sjóðsstjórnir og kjörstjórn og teknar ákvarðanir um lagabreytingar.

  • Staðsetning og tími: Auglýst eigi síðar en 11. febrúar 2027.
  • Fundargögn: Endurskoðaðir ársreikningar liggja frammi á skrifstofu frá 8. mars.
  • Lagabreytingar: Tillögur birtast á vefnum eigi síðar en 11. mars.
Skoða fundargerðir fyrri aðalfunda

Dagskrá aðalfundar

Sérstök verkefni aðalfundar samkvæmt lögum Sameykis. Á kosningaári eru öll atriðin á dagskrá.

  1. Stjórn gefur skýrslu um starfsemi félagsins á síðastliðnu ári.
  2. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til staðfestingar og fjárhagsáætlun ársins kynnt.
  3. Ákvörðun um tillögur til lagabreytinga og breytinga á reglum sjóða.
  4. Úrslit allsherjaratkvæðagreiðslu í stjórnarkjöri kynnt.
  5. Val á löggiltum endurskoðanda staðfest og kosnir tveir skoðunarmenn og tveir til vara.
  6. Kosnir fimm í kjörstjórn og jafnmargir til vara.
  7. Ákveðið árgjald félagsfólks og skipting þess milli sjóða.
  8. Kosning tveggja varamanna í stjórn til tveggja ára.
  9. Kosið í stjórnir orlofssjóðs, vinnudeilusjóðs, starfsmenntunarsjóðs og styrktar- og sjúkrasjóðs til tveggja ára.
  10. Fjárhagsáætlun næsta árs lögð fram til samþykktar.
  11. Ályktanir aðalfundar afgreiddar.
  12. Önnur mál.

Lög og reglur

Til að tryggja gagnsæi og jafnræði er allt regluverk kosninganna aðgengilegt hér. Lög Sameykis voru síðast samþykkt á aðalfundi 26. mars 2026.

Spurt og svarað

Algengar spurningar um framboð, kosningu og aðalfund. Finnur þú ekki svarið? Hafðu samband við skrifstofuna, Kristín Erna - kristin@sameyki.is

Hver getur boðið sig fram?

Allt fullgilt félagsfólk Sameykis er kjörgengt, bæði til stjórnar, sjóðsstjórna og kjörstjórnar. Fullgilt félagsfólk greiðir félagsgjald og er ekki í meira en tveggja mánaða vanskilum.

Get ég boðið mig fram þó ég hafi aldrei gegnt trúnaðarstarfi?

Já. Þú þarft hvorki reynslu af trúnaðarstörfum né stjórnarsetu. Mikilvægast er áhugi á málefnum félagsins og vilji til að setja þig inn í þau. Kynntu þér starfsreglur stjórnar og hlutverk stjórnarmanns áður en þú sendir inn framboð.

Hversu mikinn tíma tekur stjórnarseta?

Stjórn fundar samkvæmt fundaáætlun sem gerð er fyrir hvert starfsár. Fundargögn berast að jafnaði fjórum dögum fyrir fund og stjórnarfólk þarf að gefa sér tíma til að kynna sér þau. Heimilt er að taka þátt í fundum í gegnum fjarfundabúnað. Stjórnarfólk situr einnig í ráðum og nefndum á vegum stjórnar.

Er greidd þóknun fyrir stjórnarsetu?

Skrifstofa Sameykis veitir upplýsingar um þóknun fyrir setu í stjórn og sjóðsstjórnum. Hringdu í 525 8330 eða sendu fyrirspurn á Mínum síðum.

Hvernig starfar uppstillingarnefnd?

Trúnaðarmannaráð kýs níu manna uppstillingarnefnd á haustfundi kosningavetrar. Nefndin auglýsir eftir framboðum og gerir tillögur um meðstjórnendur, sjóðsstjórnir og kjörstjórn. Tillögurnar eru birtar á vefnum eigi síðar en 60 dögum fyrir aðalfund. Ef framboð eru fleiri en sætin er nefndinni ekki skylt að gera tillögur.

Hvernig fer rafræn kosning fram?

Kjörstjórn sendir félagsfólki á kjörskrá kjörgögn þegar kosning hefst 8. mars. Kosningin er rafræn og stendur í minnst tíu daga. Henni lýkur sólarhring fyrir aðalfund. Þú merkir við þá frambjóðendur sem þú vilt kjósa, að lágmarki fjóra og að hámarki sjö í hvorri kosningu meðstjórnenda.

Hvað gerist ef framboð eru jafnmörg eða færri en sætin?

Þá teljast frambjóðendur sjálfkjörnir og ekki þarf að kjósa. Uppstillingarnefnd ákveður þá hverjir sitja til fjögurra ára og hverjir til tveggja ára, þannig að sjö sitji til hvors tímabils.

Hvers vegna er kosið til tveggja og fjögurra ára?

Samkvæmt bráðabirgðaákvæði í lögum Sameykis eru árið 2027 kosnir sjö meðstjórnendur til fjögurra ára og sjö til tveggja ára. Þannig skarast kjörtímabil og ekki er skipt um alla stjórnina í einu. Atkvæðafjöldi ræður því hverjir sitja til fjögurra ára.

Hvernig legg ég fram tillögu að lagabreytingu?

Fullgilt félagsfólk getur sent stjórn tillögu að lagabreytingu. Hún þarf að berast eigi síðar en 21 degi fyrir aðalfund, eða 25. febrúar 2027. Tillögurnar eru birtar á vefnum viku fyrir fundinn.