Fyrir atvinnuleitendur
Flýtileiðir
Þjónusta við atvinnuleitendur
Atvinnuleitendur sem eru félagar í Sameyki njóta ýmissa réttinda innan félagsins. Þeir sem fá atvinnuleysisbætur frá Vinnumálastofnun geta valið sér aðild að stéttarfélagi.
Félagsfólk í Sameyki sem verður atvinnulaust heldur aðild að félaginu meðan það er skráð atvinnulaust, svo lengi sem það tilheyrir ekki öðru stéttarfélagi.
Við hvetjum atvinnuleitendur til að huga að réttindum sínum og skrá sig í viðeigandi stéttarfélag.
Réttindi atvinnuleitenda innan Sameykis
Uppfærðu netfangið
Upplýsingar og ráðgjöf
Stjórn Sameykis leggur áherslu á að styðja atvinnuleitendur og þróa þjónustu sem nýtist þeim best. Ef þú hefur spurningar eða ábendingar, hafðu samband við skrifstofuna.
- Aðgangur að náms- og starfsráðgjöf í samvinnu við Fræðslusetrið Starfsmennt.
- Tímarit Sameykis og önnur útsend gögn, t.d. tímavinnubók.
Námskeið og námsstyrkir
- Námsstyrkir úr starfsmenntasjóði
- „Gott að vita“ námskeið sem félagið býður upp á án kostnaðar
- Námskeið á vegum Starfsmenntar.
Styrktarsjóður
- Styrkir sem tengjast heilsueflingu, endurhæfingu, sjálfshjálp eða forvörnum.
- Sjúkradagpeningar vegna veikinda.
Orlofsmál
- Atvinnuleitendur hafa sama rétt og aðrir félagar til að leigja orlofshús og íbúðir félagsins.
- Sækja um aðra orlofskosti sem eru í boði hverju sinni. Þar á meðal: flugávísanir, hótelmiða, veiðikort.