Úthlutunarreglur Styrktar- og sjúkrasjóðs
Á öðrum tungumálum
1. kafli
Hver á rétt á styrk?
1.1.
Félagsfólk þarf að greiða félagsgjöld í 6 mánuði af síðustu 12 mánuðum og þar af 3 mánuði samfellt fyrir umsóknardag til að öðlast rétt á styrkjum. Umsóknir miðast við þá dagsetningu sem umsókn er afgreidd., sbr. þó gr. 1.10 sem fjallar um félagsfólk sem hefur flutt réttindi sín milli ASÍ og BSRB. Styrkur er greiddur innan tveggja vikna frá umsóknardegi er öll gögn eru fullnægjandi.
1.2.
Styrkir eru ekki veittir vegna kostnaðar sem stofnað var til áður en starf það hófst sem gefur rétt til aðildar að sjóðnum. Reikningar sem fylgja umsókn geta að hámarki verið 12 mánaða gamlir nema annað sé tekið fram í reglu um styrk.
1.3.
Félagsfólk þarf að vera í starfi þegar sótt er um styrki og uppfylla skilyrði sjóðsins.
1.4.
Almennt eru ekki greiddir styrkir vegna heilbrigðiskostnaðar sem fellur undir greiðsluþátttökukerfi Sjúkratrygginga Íslands, þ.m.t aðgerðir/meðferðir á einkastofum sem einnig eru framkvæmdar í almenna heilbrigðiskerfinu. Ekki er greiddur kostnaður vegna fegrunaraðgerða.
1.5.
Félagsfólk í atvinnuleit getur nýtt sér áunninn rétt ef það velur að greiða stéttarfélagsgjöld meðan á atvinnuleit stendur. Atvinnuleitendur ávinna sér ekki rétt á meðan á atvinnuleit stendur, en viðhalda þeim rétti sem þau höfðu áunnið sér þegar þeir voru í starfi. Óslitinn félagsaðild þarf að vera frá því að ráðningarsambandi lauk og greiðslur frá Vinnumálastofnun berast. Ekki eru greiddir dagpeningar eða styrkir ef rof er á þessu tímabili.
1.6.
Félagsfólk í fæðingar- eða foreldraorlofi getur nýtt sér áunninn rétt ef þau velja að greiða stéttarfélagsgjöld meðan á orlofi stendur.
1.7.
Félagsfólk heldur réttindum sínum í sjóðnum á meðan þau nýta veikindarétt sinn og það tímabil sem þau fá greidda sjúkradagpeninga.
1.8.
Styrkir eru eingöngu fyrir félagsfólk sjálft en ekki aðra fjölskyldumeðlimi.
1.9.
Sjóðfélagi sem hættir störfum vegna aldurs eða örorku á rétt í 6 mánuði eftir starfslok.
1.10.
Sá sem hefur öðlast rétt til greiðslu sjúkradagpeninga og dánarbóta úr sjúkrasjóði aðildarfélags innan ASÍ eða BSRB öðlast þann rétt að nýju innan hinna samtakanna samkvæmt þeim reglum sem þar gilda eftir einn mánuð, enda hafi hann fram að því átt rétt hjá fyrra félagi. Þegar sótt er um í nýju aðildarfélagi skal umsækjandi leggja fram yfirlit um greiðslur sem hann hefur þegið úr fyrri sjúkrasjóði sl. tólf mánuði.
2. kafli
Styrktar eru eftirfarandi meðferðir, forvarnir og fyrirbyggjandi aðgerðir
2.1.
Sjúkraþjálfun, sjúkranudd, hnykklækningar
Félagsfólk sem uppfyllir skilyrði gr. 1 í úthlutunarreglum styrktar- og sjúkrasjóðs fær styrk til göngugreiningar, sjúkraþjálfunar, sjúkranudds, hnykklækninga (kiropraktor) eða sambærilegrar meðferðar. Greitt er 50% af reikningi að hámarki 42.000 krónur á hverju 12 mánaða tímabili. Einnig er hægt að sækja um styrk vegna þjálfunar hjá Hjarta- og lungnastöðinni eða sambærilegum stofnunum ekki er greiddur styrkur vegna kaupa á innleggjum.
2.2.
Áhættumat hjá hjartavernd
Félagsfólk sem uppfyllir skilyrði gr. 1 í úthlutunarreglum styrktar- og sjúkrasjóðs getur fengið styrk fyrir áhættumatsskoðun hjá Hjartavernd og Heilsuvernd að hámarki 20.000 kr. einu sinni á 12 mánaða tímabili.
Krabbameinsleit
Félagsfólk sem uppfyllir skilyrði gr. 1 í úthlutunarreglum styrktar- og sjúkrasjóðs getur fengið styrk fyrir framhaldsrannsóknum vegna leghálsspeglunar, krabbameinsskoðunar í ristli og blöðruhálskirtli að hámarki 10.000.kr einu sinni á 12 mánaða tímabili.
2.3.
Sálfræði-, félags- og fjölskylduráðgjöf
Félagsfólk sem uppfyllir skilyrði gr. 1 í úthlutunarreglum styrktar- og sjúkrasjóðs fær styrk vegna meðferðar hjá eftirtöldum viðurkenndum meðferðaraðilum: Félagsráðgjafa, fjölskylduráðgjafa, sálfræðingi eða listmeðferðarfræðingi. Ekki er greitt fyrir viðtal hjá geðlækni þar sem það fellur undir afsláttarkort Sjúkratrygginga Íslands. Ekki er heldur greiddur styrkur ef sálfræðitími er niðurgreiddur hjá heilsugæslu. Greitt er 50% af reikning að hámarki 80.000 kr. á 12 mánaða tímabili.
2.4.
Dvöl á heilsu-/meðferðarstofnun
Félagsfólk sem uppfyllir skilyrði gr. 1 í úthlutunarreglum styrktar- og sjúkrasjóðs fær styrk vegna meðferðar á heilsustofnun eða eftirmeðferðar vegna áfengis- og vímuefnameðferðar. Greiddar eru allt að 3.750 kr. á dag fyrir allt að 28 daga á 12 mánaða tímabili, þó aldrei hærra en nemur reikningi vegna viðkomandi meðferðar. Skila þarf inn reikningi og staðfestingu á þátttöku eftir að meðferð lýkur.
2.5.
Líkamsrækt
Félagsfólk sem uppfyllir skilyrði gr. 1 í úthlutunarreglum styrktar- og sjúkrasjóðs fær styrk að hámarki 25.000 kr. á 12 mánaða tímabili. Reikningar eru viðurkenndir frá eftirtöldum aðilum: Líkamsræktarstöðum, sundstöðum, skíðastöðum eða íþróttafélagi. Einnig önnur líkamsrækt sem telst sambærileg að mati sjóðsstjórnar. Hvers konar búnaður er ekki styrktur af sjóðnum.
2.6.
Augnaðgerðir og gleraugu
Félagsfólk sem uppfyllir skilyrði gr. 1 í úthlutunarreglum styrktar- og sjúkrasjóðs getur sótt um styrk á 36 mánaða fresti til „laser" og augasteins aðgerðar á öðru auga 50.000 kr. eða 100.000 kr. fyrir bæði augu.
2.6.1
Einnig er veittur styrkur vegna gleraugna- eða linsukaupa einu sinni á 36 mánaða fresti. Greidd eru 20% af heildarverði reiknings sem er að upphæð 10.000 kr. eða hærri. Styrkur vegna gleraugnakaupa/linsukaupa getur þó ekki orðið hærri en 30.000 kr. Skila má kvittun allt að 24 mánaða gömlum ef félagsaðild var þegar reikningur var stofnaður.
2.7.
Tannviðgerðir
Félagsfólk sem uppfyllir skilyrði gr. 1 í úthlutunarreglum styrktar- og sjúkrasjóðs getur sótt einu sinni um styrk vegna tannlæknakostnaðar á 24 mánaða fresti. Styrkurinn nemur 50% af kostnaði sem er umfram 50.000 kr., að hámarki 110.000 kr. Dæmi : Ef reikningi að upphæð 140.000 er skilað inn er endurgreiðslan 45.000 krónur ( 140.000-50.000 = 90.000 *0,5 = 45.000 krónur ) Skila má inn nótum frá líðandi ári og árinu á undan. Til skýringar félagsfólk sem sækir um styrkinn í október 2024 má skila inn öllum nótum frá 2024 og 2023. 24 mánuðum seinna má sækja um aftur, árið 2026 og þá eru allar 2026 og 2025 nótur gildar.
2.8.
Heyrnartæki
Félagsfólk sem uppfyllir skilyrði gr. 1 í úthlutunarreglum styrktar- og sjúkrasjóðs getur sótt um styrk á 36 mánaða fresti til kaupa á heyrnartækjum. Styrkurinn nemur 50% af kostnaði sem er umfram 50.000 kr., þó að hámarki 150.000 kr.
2.9.
Tæknifrjóvgun
Félagsfólk sem uppfyllir skilyrði gr. 1 í úthlutunarreglum styrktar- og sjúkrasjóðs getur fengið endurgreitt 30% af reikningi vegna smásjár- eða glasafrjóvgunarmeðferða (lyf eru ekki innifalin). Hámarksstyrkur er 150.000 kr. á 12 mánaða tímabili.
2.10.
Ferðastyrkur
Sjóðurinn tekur þátt í ferðakostnaði félagsfólks sem þarf að fara landshluta á milli til aðgerða eða rannsókna að læknisráði vegna þeirra sjálfra, maka þeirra eða barna, enda hafi verið greitt vegna þeirra í sjóðinn í 6 mánuði af síðustu 12 og þar af síðustu 3 mánuði samfellt. Sækja verður um styrk til Sjúkratrygginga Íslands. Sé þeirri beiðni hafnað greiðir sjóðurinn 10.000 kr. fyrir 250 - 400 km akstur, 15.000 kr. fyrir 400 – 600 km akstur, 20.000 kr. fyrir 600 – 800 km akstur og 25.000 kr. fyrir 800 km akstur eða meira. Miðað er við ferðalag fram og til baka. Greitt verður að hámarki fyrir þrjár ferðir á hverju 12 mánaða tímabili. Sjóðstjórn er heimilt að víkja frá þessum viðmiðunum ef fyrir því liggja ríkar ástæður. Skila verður inn höfnun frá Sjúkratryggingum ásamt staðfestingu á læknisheimsókn.
3. kafli
Aðrir styrkir
3.1.
Fæðingarstyrkur
Sjóðfélagi sem hefur verið starfandi síðustu 6 mánuði fyrir fæðingu barns og hefur gildan ráðningarsamning við upphaf fæðingarorlofs á rétt á styrk. Við útreikning upphæðar er miðað við greidd félagsgjöld í sjóðinn síðustu 12 mánuði, ef félagsgjaldaupphæð nær 50.000 kr. er styrkurinn 200.000 kr. Nái félagsgjaldupphæðin ekki þessu marki lækkar styrkurinn hlutfallslega miðað við greidd félagsgjöld.
3.2.
Dánarbætur