Úthlutunarreglur sjúkradagpeninga
Á öðrum tungumálum
1. gr.
Inngangur
Greiddar eru bætur til sjóðfélaga í slysa- og veikindatilfellum samkvæmt eftirfarandi reglum.
Félagsfólk sem hefur flutt réttindi sín milli ASÍ og BSRB.
1.10.
Sá sem hefur öðlast rétt til greiðslu sjúkradagpeninga og dánarbóta úr sjúkrasjóði aðildarfélags innan ASÍ eða BSRB öðlast þann rétt að nýju innan hinna samtakanna samkvæmt þeim reglum sem þar gilda eftir einn mánuð, enda hafi hann fram að því átt rétt hjá fyrra félagi. Þegar sótt er um í nýju aðildarfélagi skal umsækjandi leggja fram yfirlit um greiðslur sem hann hefur þegið úr fyrri sjúkrasjóði sl. tólf mánuði.
Réttur til sjúkradagpeninga og dánarbóta fer eftir úthlutunarreglum hins nýja félags og verður aldrei meiri en það hámark sem úthlutunarreglur viðkomandi sjóðs segja til um. Ekki er um greiðslur á milli sjóðanna að ræða heldur eingöngu flutning réttinda.
2. gr.
Sjúkradagpeningar og greiðslufyrirkomulag þeirra
Rétt til dagpeninga úr sjóðnum eiga þeir sem eru fullgildir félagsmenn í Sameyki og njóta veikindaréttar skv. kjarasamningi Sameykis. Einnig þeir sjóðfélagar sem starfa á almenna vinnumarkaðinum og er réttur þeirra skv. gr. 3 í reglum þessum. Dagpeningar eru einungis greiddir tímabundið til þeirra sem verða launalausir vegna veikinda, eru með áframhaldandi ráðningu og eiga ekki rétt á öðrum greiðslum en sjúkradagpeningum Styrktar- og sjúkrasjóðs Sameykis og dagpeningum frá Sjúkratryggingum Íslands. Ekki er hægt að sækja um sjúkradagpeninga lengra en þrjá mánuði aftur í tímann.
Dagpeningar greiðast úr sjóðnum með eftirfarandi hætti:
a. Réttur sjóðfélaga til dagpeninga á hverjum 12 mánuðum er:
— Starfstími síðastliðna 6-12 mánuði, þar af síðustu 3 mánuðir samfellt fyrir umsókn, öðlast 45 daga rétt
— Starfstími síðastliðna 12 mánuði öðlast 90 daga rétt
3. gr.
Félagsmenn á almenna markaðinum
- Starfstími síðastliðna 6-12 mánuði, 90 dagar
- Starfstími síðastliðna 12 mánuði, 180 dagar
Missi atvinnulausir bætur vegna veikinda getur Styrktar- og sjúkrasjóður Sameykis styrkt þá sem svarar 100% af grunnatvinnuleysisbótum í allt að 45 daga.
Atvinnulausir ávinna sér ekki rétt á meðan á atvinnuleysi stendur, en viðhalda þeim rétti sem þeir höfðu áunnið sér þegar þeir voru í starfi. Til að öðlast þennan rétt þarf að vera óslitinn félagsaðild frá því að ráðningarsambandi lauk og greiðslur frá Vinnumálastofnun berast. Ekki eru greiddir dagpeningar eða styrkir ef rof er á þessu tímabili.
ATHUGIÐ!
Með umsókn um dagpeninga skal fylgja eftirfarandi:
- Læknisvottorð sem staðfestir óvinnufærni á því tímabili sem sótt er um sjúkradagpeninga þarf að fylgja umsókn og má ekki vera eldra en tveggja vikna. Ef læknisvottorð er óvíst þarf að skila inn endurnýjuðu vottorði í hverjum mánuði sem réttur er til dagpeninga.
- Vottorð frá launagreiðanda um hvenær rétti til launa í veikindum lauk, hvaða dagsetningu og hversu langur rétturinn var.
- Staðfesting á nýtingu skattkorts. Eyðublað sem er inni á mínum síðum Sameykis þar sem sótt er um dagpeninga.
- Þrír síðustu launaseðlar.