Sameyki Logo
28. apríl 2022
Á 1. maí fögnum við alþjóðlegum baráttudegi launafólks. Það er gleðilegt að við getum öll sem eitt komið saman í lok faraldursins, gengið kröfugöngu og haldið áfram baráttunni fyrir bættum kjörum opinberra starfsmanna og almennings alls.
Ríkið hefur ákveðið einhliða að hækka grunnlaun mismunandi mikið eftir launaflokkum þ.e. frá 7.875 til 10.500 kr. vegna hagvaxtarauka ólíkt Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborg sem hækkaði alla grunnlaunaflokka sína um 10.500 kr.
27. apríl 2022
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, hagfræðingur hjá BSRB, og Ásgeir Brynjar Torfason, doktor í fjármálum, fluttu erindi ...
Kæru félagar, til hamingju með alþjóðlegan baráttudag verkalýðsins þann 1. maí! Vorið flæðir inn um gluggana og loksins getum við fagnað þessum merkisdegi saman í raunheimum eftir tveggja ára heljartak heimsfaraldurs án baráttufunda og kröfugangna.
26. apríl 2022
Kl. 13.00. Við söfnumst saman við Hlemm á horni Laugavegs og Snorrabrautar. Kl.13.30. Kröfugangan fer af stað niður Laugaveginn með Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitinni Svan. Kl. 14.10. Útifundur hefst á lngólfstorgi.
Í dag hefst dreifing á tímariti Sameykis til félagsmanna. Þórarinn Eyfjörð formaður Sameykis segir í leiðaragrein tímaritsins: „Við sem samfélag höfum lagt áherslu á að vera hluti af norræna velferðarkerfinu, enda standa norrænu löndin fremst þegar kemur að velferð og jöfnuði. Til að standa undir nafni þá ætlumst við til að stjórnvöld svari lágmarkskröfum um að gæta réttlætis og jafnréttis og verndi eigur og auðlindir þjóðarinnar svo fjármálahýenur skyndigróðans geti ekki látið greipar sópa um sameiginlegar eigur okkar.“
25. apríl 2022
Hagvaxtarauki samkvæmt kjarasamningum reiknast 10.500 kr. á taxtalaun vegna hagvaxtar árið 2021 og tók gildi 1. apríl síðastliðinn. Hagvaxtarauki kemur því til greiðslu í fyrsta sinn 1. maí næstkomandi. Samningsaðilar eru mismunandi langt komnir með útgáfu nýrra launataflna en Reykjavíkurborg og Samband íslenskra sveitarfélaga hafa þegar birt uppfærðar töflur sem einnig eru komnar hér undir kaup og kjör.
22. apríl 2022
Sameyki leitar að kröftugri manneskju sem er tilbúin að taka þátt í uppbyggingarstarfi hjá stærsta stéttarfélagi opinberra starfsmanna á Íslandi. Starfið snýr m.a. að afgreiðslu umsókna í sjúkra- og styrktarsjóð félagsins og tilheyrir félagsdeild. Deildin er í framlínuþjónustu við félagsmenn og er oft fyrsta snerting þeirra í heimsóknum, símhringingum og netsamskiptum. Unnið er í teymi í þjónustudeild þó starfsmenn hennar sinni auk þess tilteknum verkefnum þvert á deildir
20. apríl 2022
Sameyki vill minna félagsfólk sitt á að hækkun á félagsgjaldi tekur gildi næstu mánaðarmót 1. maí. Samþykkt var á aðalfundi Sameykis 31. mars sl. að hækka félagsgjaldið um 0,1 prósent til að styrkja og efla Vinnudeilusjóð vegna komandi kjarasamninga.
Fram kemur í niðurstöðum rannsóknar Vörðu - rannsóknarstofnunar vinnumarkaðsins að líkur á þunglyndi aukast eftir því sem félags- og efnahagsleg staða er verri. Í COVID-19 faraldrinum bar lágtekjufólk og fólk í viðkvæmri stöðu á íslenskum vinnumarkaði auknar byrðar af faraldrinum umfram þau sem voru be