Sameyki Logo
01. apríl 2020
Ýmis fjárnámskeið eru í boði hjá Fræðslusetrinu Starfsmennt. Þar má nefna námskeiðin Microsoft Teams og OneDrive, Vönduð íslenska...
Greitt verður samkvæmt kjarasamningum Sameykis og Reykjavíkurborgar og ríkis 1. maí næstkomandi. Launadeildir þessara viðsemjenda réðu ekki við að greiða út samkvæmt nýju samningunum nú þar sem skammt var til mánðarmóta þegar samningarnir voru samþykktir. Seltjarnarnesbær og Akraneskaupstaður greiddu hins vegar samkvæmt nýjum samningi nú um mánaðarmótin enda samningur við Sambandið samþykktur fyrr.
Í ljósi umræðunnar um fjölgun starfsfólks í opinbera geiranum birti BSRB nýverið úttekt á því hver staðan er í raun og sann. Á vefsíðu BSRB kemur fram að opinberum starfsmönnum sem sinna meðal annars mikilvægri almannaþjónustu hefur fækkað hlutfallslega miðað við mannfjölda á undanförnum árum þrátt fyrir aukningu verkefna og breytta aldurssamsetningu þjóðarinnar. Þetta sýnir úttekt BSRB á stöðugildum hjá ríki og sveitarfélögum.
31. mars 2020
Sameyki stéttarfélag í almannaþjónustu harmar það að Isavia skuli nú grípi til þess ráðs að segja upp fjölda starfsmanna í stað þess að nýta þau úrræði sem ríkisstjórnin hefur boðið fyrirtækjum upp á vegna þeirrar stöðu sem nú er uppi í samfélaginu.
30. mars 2020
Kjarasamningur Sameykis við ríkið var samþykktur í atkvæðagreiðslu sem lauk nú um hádegið. Já sögðu rúm 78% en nei rétt rúm 18%. Rúm þrjú prósent tóku ekki afstöðu. Þátttaka í atkvæðagreiðslunni var tæplega 44%.
Sameyki í samstarfi við Framvegis miðstöð um símenntun býður félagsmönnum upp á fræðslufyrirlestra í beinni útsendingu.
Einhverjir félagsmenn áttu að vera á nætuvakt 9. mars þegar vekfalli var aflýst og gætu því átt rétt á verkfallsbótum ef dregið verður af launum þeirra vegna verkfalls.
27. mars 2020
Í samstarfi við fræðslumiðstöðvar víða um land erum við að vinna að því að bjóða upp á fyrirlestra og námskeið á vefnum.
Ég vil fyrir hönd okkar allra þakka félagsfólki í Sameyki sem stendur vaktina nú á þessum erfiðu tímum. Starfsfólk sem sinnir umönnun veikra, aldraðra og fatlaðra, fólkið okkar sem starfar í skólum og leikskólum og allir hinir sem sinna almannaþjónustu um land allt. Þið eruð fólkið sem allir landsmenn reiða sig á núna og ég veit að þið munið standa undir þeirri ábyrgð með prýði. Við erum sannarlega stolt af ykkur.
24. mars 2020
Kjarasamingur Sameykis við Reykjavíkurborg var samþykktur með 80,5% greiddra atkvæða. Kosningaþátttaka var rétt tæplega 35% og já sögðu 80,5%, nei sögðu 15,45% og 4,45% tóku ekki afstöðu.