30. júní 2021
Dómsátt í máli gegn Reykjavíkurborg
Dómsátt var gerð í Félagsdómi í máli BSRB f.h. Sameykis um að Reykjavíkurborg sé skylt að greiða starfsfólki Sundlaugar Grafarvogs, félagsmönnum Sameykis sem voru á vakt um páskana 2020 laun í samræmi við vaktskrá, þ.m.t. yfirvinnukaup samkvæmt gr. 2.3.2. og stórhátíðarkaup samkvæmt grein 1.4.2. fyrir vinnuframlag á sérstökum frídögum og stórhátíðardögum samanber kjarasamningi Sameykis við Reykjavíkurborg.