Fréttir og greinar

09. desember 2014

Jólin, jólin koma brátt... og vorönnin hjá Starfsmennt líka

jól 2780587_smennt_jol_2008_180x140_pixÍ nýútkomnu fréttabréfi Starfsmenntar kemur fram að nú á næstu vikum er kjörið að huga að námi á nýju ári og skoða hvað verður í boði hjá Fræðslusetrinu Starfsmennt á vorönninni. Skráningarsíður fyrir öll námskeið hafa verið settar upp og ekkert því til fyrirstöðu að skoða úrvalið og skrá sig.  Setrið er einnig í samstarfi við nokkra skóla um hagnýtar námsleiðir sem efla fagmennsku og möguleika á spennandi starfsþróun. Þeir sem vilja nýta sér það þurfa að hafa hraðar hendur þar sem umsóknarfrestur rennur yfirleitt út nokkru fyrir jól.

26. nóvember 2014

Endurskoðun starfsmats Reykjavíkurborgar

Starfsmatsnefnd Reykjavíkurborgar hefur nú lokið vinnu sinni við endurskoðun starfsmats borgarinnar samkvæmt ákvæðum í kjarasamningum. Niðurstöður endurskoðunar er að finna á innri vef Reykjavíkurborgar og einnig hér á heimasíðu SFR  Stefnt er að því að greiða laun samkvæmt nýju mati 1. desember nk.  Leiðréttingin er afturvirk frá 1. febrúar 2014. Félagmenn SFR sem starfa hjá Reykjavíkurborg geta haft samband við kjara og félagssvið SFR óski þeir frekari upplýsinga.