Sameyki Logo
08. júní 2018
Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, tilkynnti stjórn bandalagsins í morgun að hún muni ekki gefa kost á sér til endurkjörs á þingi bandalagsins sem haldið verður um miðjan október. Hún mun gegna starfinu áfram til loka þings bandalagsins.
Vinnustaðir gera þá kröfur að atvinnurekendur setji í forgang fyrirbyggjandi aðgerðir gegn kynbundinni áreikni og öðru ofbeldi á vnnustöðum. Þetta kom fram á stórum fundi sem BSRB og önnur heildarsamtök launafólks ásamt Kvenréttindafélagi Íslands buðu #metoo konum til fundar í vetur um næstu skref byltingarinnar. Nýlega framkvæmdi Halla María Ólafsdóttir, MPM í verkefnastjórnun, rannsókn meðal 100 stærstu vinnustaða landsins til að kanna hvort #metoo umræðan hafi haft áhrif á vinnustaðamenningu þeirra. Niðurstöðurnar sýna meðal annars að rúmlega fjórðungur af þessum stærstu vinnustöðum landsins hefur ekki framkvæmt áhættumat og 12 prósent hafa ekki unnið áætlun um forvarnir líkt og þeim er skylt að gera.
07. júní 2018
Það er brakandi blíða víða um land og laust í orlofshúsum SFR á Eiðum, Vaðnesi, Húsafelli, Drangsnesi, Hólmavík og Munaðarnesi - kíktu á orlofsvefinn gegnum Mínar síður.
05. júní 2018
Laun félagsmanna SFR hjá Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu verða hækkuð um 1,3% afturvirkt frá 1. janúar 2017, til að bæta þeim upp launaskrið á almennum vinnumarkaði. Hækkunin kemur til framkvæmda í næstu launakeyrslum.
Við viljum vekja athygli á því að nú fer senn að fyllast í Jónsmessuferð LSFR svo þeir sem ætla með þurfa að skrá sig sem fyrst. Farið verður til Vestmannaeyja þann 21. júní og lagt af stað frá Grettisgötu kl 7.
01. júní 2018
Enn eru þó nokkur orlofshús SFR laus í sumar og einnig íbúðirnar okkar í Reykjavík og á Akureyri. Orlofshúsin okkar eru víða um land t.d. Munaðarnesi, Vaðnesi, Húsafelli, Kjarnaskógi og á Eiðum þar sem er nú brakandi sól.
31. maí 2018
Frá og með 1. júní 2018 hækka laun félagsmanna SFR sem fá greidd laun samkvæmt kjarasamningum við ríki, Vinabæ, Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu og Reykjavíkurborg um 3%. Laun samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga hækka um 2%. Það skal tekið fram að hækkanirnar koma ekki fram fyrr en 1. júlí fyrir þá sem eru eftir á greiddir. Hins vegar hækkaði launatafla Isavia og Fríhafnarinnar 1. maí um 3% og kemur sú hækkun til greiðslu núna.
30. maí 2018
Trúnaðarmenn og fulltrúar SFR og St.Rv. hittust á sameiginlegum fundi á Grand hótel í gær og ræddu áfram hugmyndir um sameiningu félaganna. Lárus Ýmir stýrði hópavinnu þar sem ýmsir þættir mögulegrar sameiningar eru skoðaðir og gerð var tilraun til þess að rýna dýpra ofan í einstaka þætti. Fundurinn var afar vel sóttur og þótti takast mjög vel enda trúnaðarmenn og fulltrúar félaganna vinnusamir með eindemum.
29. maí 2018
Jónsmessuferð Lífeyrisdeildar SFR verður að þessu sinni ferð til Vestmannaeyja frá Landeyjarhöfn. Farið verður frá Grettisgötu 89 kl. 7 að morgni fimmtudagsins 21. júní og komið til baka um kl. 21:00. Í boði er hádegis- og kvöldverður auk skoðanaferða og kostar ferðin 6500 kr. Nauðsynlegt er að skrá sig fyrir 14. júní, en félagar í LSFR mega bjóða með sér gesti.
25. maí 2018
BSRB kallar eftir því að ríki og sveitarfélög brúi þegar í stað bilið milli fæðingarorlofs og dagvistunarúrræða. Í ályktun um dagvistunarmál sem samþykkt var á aðalfundi bandalagsins í gær segir að það sé óásættanlegt að foreldrar þurfi að bíða tekjulausir í óvissu þar sem engin úrræði séu til staðar.