Fréttir og greinar

29. janúar 2014

Gott að vita námskeið og fyrirlestrar

Reykjavík - Akranes - Stykkishólmur - Akureyri - Reykjanes

Skráning á Gott að vita námskeiðin hefst föstudaginn 31. janúar kl. 10. Efnistökin eru fjölbreytt að vanda og má þar m. a. nefna spænsku, ávaxtatré, gítargrip, snjallsíma, fluguhnýtingar, meniga, skriðsund, jóga, rússneskt hekl, tæknihugtök, GPS, prjónanámskeið, framsögn og tjáningu og fleira.

29. janúar 2014

Blaðið í pósti!

forsida-jan-netBlað stéttarfélaganna er um þessar mundir að berast félagsmönnum SFR og St.Rv. í pósti. Í blaðinu eru m.a. upplýsingar um páskaúthlutun orlofshúsa, dagskrá hinna sívinsælu Gott að vita námskeiða, en nánari upplýsingar um þau má einnig finna hér á vefnum.

Þá er í blaðinu einnig fjallað ítarlega um símenntunarmál, m.a. viðtöl við nemendur og forsvarsfólk símenntunarmiðstöðva.  Auk þess sem þar má lesa um stöðuna í kjarasamningsviðræðum félaganna og áherslur þeirra.

16. janúar 2014

Nýr bæklingur Starfsmenntar kominn út

Starfsmennt-2014-vor-bæklingur-litil-myndÚt er kominn vorbæklingur Fræðslusetursins Starfsmenntar þar sem nám og þjónusta við stofnanir er kynnt. Starfsmennt býður opinberum starfsmönnum upp á starfstengda símenntun og veitir stofnunum heildstæða þjónustu á sviði starfsþróunar.

Í þessum kynningarbæklingi er að finna allar helstu upplýsingar um þjónustu Fræðslusetursins Starfsmenntar vorið 2014, sjá nánar hér.