Fréttir og greinar

29. apríl 2015

BLAÐ STÉTTARFÉLAGANNA ER KOMIÐ ÚT

1 mai blad forsíðaBlað stéttarfélaganna er komið sneisafullt af efni. Þar má meðal annars lesa um 1. maí og dagskrá dagsins í Reykjavík. Tveir vinnustaðir eru heimsóttir, en það eru Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu og Höfðatorg. Þá er fjallað um kjaramál og stöðuna við kjaraviðræðum félaganna. Í blaðinu má einnig finna viðtal við Guðrúnu Kristínu Svavarsdóttur en hún hefur undanfarið glímt við krabbamein og hefur miklar skoðanir á kostnaðurþátttöku sjúklinga.

14. apríl 2015

Hlutverk stéttarfélaga í samfélaginu - Ráðstefna 21. apríl

ráðstefna BSRB og ASI litilÍ aðdraganda 1. maí 2015 hafa BSRB og ASÍ tekið höndum saman og ákveðið að halda ráðstefnu, þar sem fjallað verður um hlutverk stéttarfélaga í samfélaginu. Á ráðstefnunni verður farið yfir hlutverk og starf stéttarfélaga og gerð tilraun til að skýra eðli starfsemi þeirra og þjónustuskyldur við félagsmenn. Skráning á www.1mai.is.

Fundinum verður streymt. Til að komast inn á streymið fer fólk inn á www.1mai.is í fyrramálið.