09. júlí 2019
SFV hafnar samkomulagi
Eins og fram hefur komið gekk Sameyki frá samkomulagi um endurskoðaða viðræðuáætlun við stærstu viðsemjendur sína í byrjun mánaðarins. Samkomulagið felur í sér að aðilar stefni á að hafa náð samningum fyrir 15. september næstkomandi og fram að þeim tíma gildi friðarskylda. Þar sem langt er síðan gildistími síðustu kjarasamninga rann sitt skeið, urðu aðilar ásáttir um að innágreiðsla að upphæð 105.000 kr. verði greidd hverjum starfsmanni miðað við fullt starf. Upphæðin greiðist hlutfallslega miðað við starfstíma og starfshlutfall á tímabilinu frá og með 1. apríl 2019 til og með 30. júní 2019. Greiðslan kemur til útborgunar 1. ágúst 2019.