29. september 2015
Verkfallsboðun samþykkt
Verkfallsboðun starfsmanna ríkisins hjá SFR stéttarfélag í almannaþjónustu og Sjúkraliðafélagi Íslands hafa verið samþykkt. Niðurstöður úr atkvæðagreiðslu liggja nú fyrir og voru aðgerðirnar samþykktar með 85,15% atkvæðum hjá SFR félögum og 90,9% hjá sjúkraliðum. Alls tóku 63,81% félagsmanna SFR þátt í atkvæðagreiðslunni og 69,8% hjá Sjúkraliðafélaginu.