28. september 2023
Fjölbreytt og skemmtileg Gott að vita námskeið fyrir félagsfólk
Sameyki í samstarfi við Framvegis miðstöð símenntunar býður upp á námskeið og fyrirlestra fyrir félagsmenn þeim að kostnaðarlausu. Þetta haustið eru flestir viðburðir í húsi, ýmist hjá Framvegis Borgartúni 20, eða víðs vegar um höfuðborgarsvæðið. Fræðsla um súrdeig, fjármál, bollakökuskreytingar, samskipti á vinnustað og prjónanámskeið verða á netinu og fá þátttakendur senda krækju á viðburði þegar nær dregur. Þau sem ekki eru vön fjarnámi eru hvött til að hafa samband við Framvegis og fá leiðbeiningar áður en viðburður sem þau skrá sig á hefst.