23. maí 2013
Stofnun ársins valin í lok vikunnar
Tilkynnt verður um hvaða stofnanir hljóta nafnbótina Stofnun ársins 2013 og Fyrirmyndarstofnanir á föstudaginn kemur. Fulltrúum stofnana hefur verið boðið til hátíðlegar athafnar þar sem tilkynnt verður um úrslitin úr könnuninni og viðurkenningar veittar. Þetta er í áttunda sinn sem SFR tekur þátt í könnuninni, en hún er unnin af Capacent í samstarfi við VR, St.Rv. og fjármálaráðuneytið.