22. ágúst 2019
Viltu vera með?
Auglýst er eftir framboðum til fulltrúaráðs Sameykis. Kosið verður í fulltrúaráð Sameykis á fyrsta fundi trúnaðarmannaráðs sem verður haldinn 11. september 2019. Allir trúnaðarmenn sem hafa áhuga á að taka frekari þátt í starfi Sameykis og mótun stefnu félagsins eru hvattir til að bjóða sig fram í fulltrúaráð, bæði reynslumiklir trúnaðarmenn og nýkjörnir.