02. október 2023
Kjarasamningar, samfélag og hamingja
Sól fer nú lækkandi á lofti og kjarasamningsvetur nálgast. Ljóst er að næstu mánuðir verða að mörgu leyti endurtekið efni frá síðasta vetri. Þá tóku kjarasamningar mið af því að hagkerfið var ekki að vinna með okkur, stríð og orkukreppa í Evrópu, húsnæðismarkaðurinn og stýrivextir í fordæmalausu hækkunarferli o.s.frv., o.s.frv.