09. mars 2020
Til hamingju með samstöðuna kæru félagar
Í nótt náðist að semja við alla þrjá af okkar stærstu viðsemjendum og aflýsa þannig verkföllum sem hófust aðeins nokkrum klukkustundum fyrr.
Undir morgun aðfaranótt mánudagsins 9. mars skrifuðum við undir samninga við Samband íslenskra sveitarfélaga, ríkið og Reykjavíkurborg og munum nota næstu daga og vikur til að kynna þá rækilega og bera undir atkvæði ykkar félagsmanna.