19. mars 2013
Jafnréttismál á aðalfundi
Á aðalfundi SFR í síðustu viku var ályktað um jafnréttismál, en félagið hefur verið í fararbroddi að benda á kynbundinn launamun meðal opinberra starfsmanna. Í ályktuninni krefst SFR þess að stjórnvöld, verkalýðshreyfingin og atvinnurekendur taki höndum saman um leiðréttingu kynbundins launamunar.