Sameyki Logo
27. mars 2020
Ég vil fyrir hönd okkar allra þakka félagsfólki í Sameyki sem stendur vaktina nú á þessum erfiðu tímum. Starfsfólk sem sinnir umönnun veikra, aldraðra og fatlaðra, fólkið okkar sem starfar í skólum og leikskólum og allir hinir sem sinna almannaþjónustu um land allt. Þið eruð fólkið sem allir landsmenn reiða sig á núna og ég veit að þið munið standa undir þeirri ábyrgð með prýði. Við erum sannarlega stolt af ykkur.
24. mars 2020
Kjarasamingur Sameykis við Reykjavíkurborg var samþykktur með 80,5% greiddra atkvæða. Kosningaþátttaka var rétt tæplega 35% og já sögðu 80,5%, nei sögðu 15,45% og 4,45% tóku ekki afstöðu.
Til sölu er orlofshús til brottflutnings. Húsið er Í Reykjaskógi í Biskupstungum og er svokallað A-hús með lágum veggjum á langhlið og bröttu þaki. Húsið stendur á steyptum súlum og er byggt árið 1982. Það er er 58 fm að gólffleti, við það á palli stendur skýli sem er 8,5 fm. Húsið skiptist í stofu, borðstofu og eldhús í sama rými. Þá eru tvö svefnherbergi í húsinu ásamt svefnlofti yfir herbergjum. Hluti af húsi er viðbygging en í henni er bað og forstofa. Húsið skal fjarlægt í síðasta lagi 30. apríl næstkomandi og skal kaupandi gera það á sinn kostnað.
23. mars 2020
Í ljósi aðstæðna vegna COVID-19 sýkingar þá skal tekið fram að orlofshús og íbúðir félagsins eru ekki til leigu fyrir sóttkví.
Kjarasamningur Sameykis og Sambands íslenskra sveitarfélaga var samþykktur með miklum meirihluta. Atkvæðagreiðslunni lauk nú í morgun og var þátttaka 43%. Niðurstöður fóru á þann veg að já sögðu 77,99%, nei sögðu 20,75%. 1,26% tóku ekki afstöðu.
Aðalfundi Sameykis sem vera átti þann 31. mars næstkomandi verður frestað um óákveðinn tíma samkvæmt ákvörðun stjórnar Sameykis. Ástæðan er samkomubann og hið erfiða ástand vegna Covid-19 veirunnar sem nú herjar á okkur. Nýr aðalfundur verður haldinn um leið og hægt er og verður þá að sjálfsögðu auglýstur með lögformlegum leiðum.
19. mars 2020
Í frétt á vef BSRB kemur fram að BSRB kallar eftir því að foreldrar barna sem þurfa að vera frá vinnu vegna skerðinga á skólastarfi eða vegna þess að barn viðkomandi sé í sóttkví fái rétt til tímabundinna greiðslna frá ríkinu rétt eins og fólk sem þarf að vera í sóttkví, í umsögn sem send hefur verið Alþingi.
Nú stendur yfir rafræn atkvæðagreiðsla inni á Mínum síðum um kjarasamninga.
18. mars 2020
Hér á vefnum má finna ítarlegar upplýsingar um þá kjarasamninga sem voru undirritaðir 9. mars sl. Atkvæðagreiðsla á samningi sveitarfélagsstarfsmanna gerður við Samband íslenskra sveitarfélaga er þegar komin í atkvæðagreiðslu, en atkvæðagreiðsla um samning Sameykis við Reykjavíkurborg hefst á morgun fimmtudaginn 19. mars kl. 9 og atkvæðagreiðsla um kjarasamning ríkisstarfsmanna Sameykis hefst miðvikudaginn 25. mars kl. 9
Kynningarfundir fyrir félagsmenn sem starfa hjá ríkinu og taka laun samkvæmt kjarasamningi við Fjármála- og efnahagsráðherra f.h. ríkissjóðs verður 18. mars kl. 16 og 19. mars kl. 9.