23. október 2024
Viðburður á Kvennafrídaginn 24. október
Á morgun 24. október standa 34 samtök femínista, kvenna, launafólks, fatlaðs fólks og hinsegin fólks fyrir viðburði í Bíó Paradís kl. 18:30, þar sem framkvæmdastjórn Kvennaárs 2025 kynnir sameiginlegar kröfur gagnvart stjórnvöldum, nákvæmlega einu ári eftir Kvennaverkfall og stærsta baráttufund Íslandssögunnar.